Hoppa yfir valmynd

Frétt

16. nóvember 2012 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Samþykkt að greiða atvinnuleitendum desemberuppbót

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra um að greiða atvinnuleitendum desemberuppbót. Greiðsla til þeirra sem eiga rétt á óskertri uppbót verður 50.152 kr. Þetta er þriðja árið í röð sem atvinnuleitendur fá greidda desemberuppbót, en áður hafði slík uppbót síðast verið greidd árið 2005.

Rétt til desemberuppbótar eiga atvinnuleitendur sem eru tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins og hafa staðfest atvinnuleit einhvern tíma á tímabilinu 20. nóvember til 3. desember 2012. Greiðslur verða í hlutfalli við lengd þess tíma sem viðkomandi hefur verið skráður atvinnulaus á þessu ári. Hafi fólk verið hluta ársins á vinnumarkaði á það rétt á hlutfallslegri greiðslu desemberuppbótar  frá atvinnurekanda samkvæmt kjarasamningi.

Óskert desemberuppbót nemur um 50.152 kr. sem eru 30% af óskertum grunnatvinnuleysisbótum. [...] Til samanburðar má geta þess að desemberuppbót samkvæmt kjarasamningi Eflingar og Samtaka atvinnulífsins er 50.500 kr.

Útgjöld Atvinnuleysistryggingasjóðs vegna greiðslu desemberuppbótar nema 325 milljónum króna.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum