Hoppa yfir valmynd

Frétt

20. nóvember 2012 Dómsmálaráðuneytið

Norrænn ráðherrafundur um almannaöryggi í Reykjavík á fimmtudag

Norrænn ráðherrafundur um almannaöryggi verður haldinn í Reykjavík næstkomandi fimmtudag í boði Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra. Auk innanríkisráðherra og ráðuneytisstjóra sitja fundinn innanríkisráðherra Finnlands, ráðuneytisstjóri norska dóms- og almannaöryggisráðuneytisins og ráðuneytisstjóri sænska varnarmálaráðuneytisins auk sérfræðinga landanna á þessum sviðum.

Á ráðherrafundinum verður rætt um norrænt samstarf á sviði almannaöryggis á grundvelli HAGA yfirlýsingarinnar sem fjallar um almannaöryggi svo og um netöryggi. Jafnframt munu ráðherrarnir ræða skýrslu 22. júlí nefndarinnar í Noregi um viðbrögð við voðaverkunum í Osló í fyrrasumar.

Fundurinn verður haldinn í Þjóðmenningarhúsinu og mun standa kl. 8.30 til um 11.40 og í lokin verður fjölmiðlum gefinn kostur á að ræða við fulltrúa landanna.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum