Hoppa yfir valmynd

Frétt

28. nóvember 2012 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Grein umhverfis- og auðlindaráðherra í DV - Það skiptir máli

 

Eftirfarandi grein Svandísar Svavarsdóttur umhverfis- og auðlindaráðherra birtist í DV 28. nóvember 2012.

Það skiptir máli

Við erum alltaf að velja leiðir, oft á dag. Við tökum þúsundir ákvarðana, smáar og stórar, frá morgni til kvölds. Hverju á að klæðast, á að hella upp á kaffi, hvernig komum við okkur til vinnu, hvernig tölum við saman, hver gerir hvað? Svona fetum við okkur í gegnum dagana, litlar ákvarðanir safnast saman eða raðast upp í mynd og við blasir þátttaka í samfélagi. Hvert lítið skref snertir samfélagið, heiminn, náttúru og framtíð. Í þeim skilningi er lífið pólitík, getur ekki annað verið og þar tökum við öll þátt.

Skýrar en oft annars eigum við hlut að máli þegar við veljum fólk og flokka sem við viljum sjá á þingi og í sveitarstjórn. Kosningar eru vettvangur þar sem ákvörðunin er stærri en alla jafna, enda kemur þar þorri þjóðarinnar saman til að taka ákvörðun. Hvernig á að stjórna, greiða úr vandasömum málum og skipta gæðum? Hvaða áherslur eiga að ráða? Hvert á að halda? Hvernig deilum við byrðunum? Eftir hverju á að sækjast? Hvað ber að varast? Hvað er sanngjarnt og réttlátt? Hvernig félagsskapur á samfélagið okkar að vera?

Stefnan skiptir máli

Þjóðin er lúin eftir álag undanfarinna ára en kosningar skipta máli, nú sem fyrr. Þess vegna vekur það áhyggjur að kjörsókn í prófkjörum haustsins þykir dræm. Stór hluti kjósenda í þingkosningum er líka óákveðinn ef marka má skoðanakannanir og sumir segjast ætla að sitja heima þegar þar að kemur. Þetta er auðvitað ekki gott, þetta er okkur áminning og við hljótum öll að vilja gera betur.

Samt gefa niðurstöður prófkjaranna ótvíræð skilaboð og valkostir í komandi kosningum eru skýrari en oft áður. Hjá Vinstri grænum má til dæmis greina sterkan stuðning við konur til forystu. Hér í Reykjavík var niðurstaðan skýr og umboðið sterkt. Í Kraganum er Rósa Björk Brynjólfsdóttir  komin til skjalanna og á Suðurlandi er stillt upp tveimur ungum og öflugum konum, Arndísi Soffíu Sigurðardóttur og Ingu Sigrúnu Atladóttur, myndin er að raðast upp. Ákvarðanir skipta máli, kosningar skipta máli.

Það skiptir líka máli hverjir stjórna landinu og hvernig, það hefur ríkisstjórnin sem nú situr sýnt svo um munar. Stjórnarflokkarnir hafa markað mörg og mikilvæg spor á öllum sviðum þjóðlífsins. Þar hafa verið teknar stórar ákvarðanir og litlar ákvarðanir sem allar skipta máli fyrir félagslegt réttlæti og græna framtíð, kvenfrelsi og betri daga þó að enn sé margt vinna. Árangurinn er þarna og fer ekki á milli mála. Það skiptir máli, þó að þeir sem hæst láta þykist ekki sjá hann.

Endurvinnsla frá hægri

Á móti ætla hægriöflin að tefla fram endurteknu efni frá árunum fyrir hrun. Skattalækkunarkórinn ætlar allt að æra. Nýjasta útspilið er að Samtök atvinnulífsins, gamall kunningi, vilja færar byrðar af þeim sem léttast geta borið þær. Um 20 milljarðar eiga að renna til þeirra 5% skattgreiðenda sem hæstar hafa tekjurnar! Núverandi ríkisstjórn færði skattbyrðar af þeim sem hafa lægstu tekjurnar yfir á hæstu tekjuhópana og styrkti tekjustofna ríkisins til að rétta af hallann sem hægristjórnir lögðu á þjóðina, verja sameign okkar allra og auka jöfnuð til nýrrar sóknar. Þess var aldeilis þörf, þegar efnahagur landsins lá í rúst.

Nú birtast bólupostular hver á fætur öðrum og hafa uppgötvað leið til framtíðar. Það á að auka ójöfnuð. Þetta er fólkið sem á sínum tíma sagði að stærsta velferðarmálið væri traust efnahagsstjórn rétt áður en allt fór á kaf og skútan hljóp á sker.

Af þeim þúsundum ákvarðana sem við tökum dag hvern eru bæði góðar ákvarðanir og slæmar. Vorið 2009 tók þjóðin stóra ákvörðun og góða, sem hefur stuðlað að betra samfélagi undir stjórn vinstriflokka með konur í forystuhlutverkum á mörgum póstum. Við þurfum áfram ríkisstjórn félagshyggju og réttlætis. Græna og góða og kvenfrelsissinnaða. Þannig höldum við best áfram.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum