Hoppa yfir valmynd

Frétt

13. desember 2012 Utanríkisráðuneytið

Sótt um IPA styrki fyrir 67 verkefni árið 2013

Umsóknarfrestur um IPA styrki til verkefna á sviði atvinnuþróunar og byggðamála og velferðar- og vinnumarkaðsmála, rann út 30. nóvember sl. Alls bárust 67 verkefnistillögur með umsókn um styrki en gert er ráð fyrir að styrkt verði allt að 20 verkefni um land allt. Til ráðstöfunar eru u.þ.b. 8.3 milljónir evra eða sem nemur 1,3 milljörðum ÍKR árinu 2013.

Verkefni sem styrkt verða skulu taka mið af "Ísland 2020" stefnumörkuninni og vera unnin í samstarfi a.m.k. þriggja aðila. Lágmarksstyrkur til hvers verkefnis er 200 þús. evrur, um 33 milljónir ÍKR, og að hámarki ein milljón evra, eða um 165 milljónir ÍKR.

Umsóknirnar skiptast nokkuð jafnt á milli landshluta sem og forgangssviðanna tveggja. Umsóknirnar fara nú í faglegt mat íslenskra og erlendra sérfræðinga og niðurstöðu er að vænta í apríl nk.

Upplýsingar um landsáætlun IPA fyrir árin 2011, 2012 og 2013.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum