Hoppa yfir valmynd

Frétt

15. janúar 2013 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Grein umhverfis- og auðlindaráðherra í Fréttablaðinu - Rammaáætlun markar tímamót

 

Eftirfarandi grein Svandísar Svavarsdóttur umhverfis- og auðlindaráðherra um rammaáæltun birtist í Fréttablaðinu 15. janúar 2013.

 

Rammaáætlun markar tímamót

Alþingi samþykkti í gær þingsályktun um vernd og orkunýtingu landsvæða. Þar með er lokið löngu ferli við annan áfanga rammaáætlunar – ferli sem Alþingi mótaði með lagasetningu vorið 2011 og samþykkt var án mótatkvæða. Lögin tryggðu faglega aðkomu bestu sérfræðinga landsins á sviði landgæða og orkunýtingar við mat á landsvæðum sem áætlunin hafði til umfjöllunar.

Alþingi lagði einnig áherslu á tækifæri almennings til að koma sínum sjónarmiðum og ábendingum á framfæri. Yfir 200 umsagnir bárust frá einstaklingum, fyrirtækjum, félagasamtökum og ýmsum hagsmunaaðilum sem leiddu til þess að sex svæði voru færð úr virkjunarflokki yfir í biðflokk áður en tillagan kom til kasta Alþingis. Þannig höfðu raddir almennings áhrif á lokaútkomuna eins og vilji Alþingis stóð til.

Í umsagnaferlinu komu fram rökstuddar athugasemdir um að nauðsynleg gögn skorti um svæðin sex. Eru þau því færð í biðflokk meðan ítarlegri gagna um þau er aflað áður en ákvörðun verður tekin um afdrif þeirra – ákvörðun sem byggir á bestu mögulegu upplýsingum um náttúrufar og umhverfi þeirra. Þannig er náttúran látin njóta vafans í anda varúðarreglunnar.

Samþykkt rammaáætlunar endurspeglar aukinn skilning á því hversu stóru hlutverki náttúran gegnir fyrir afkomu okkar og atvinnulíf. Það á ekki aðeins við um starfsgreinar á borð við landbúnað og orkufrekan iðnað. Það er einmitt náttúran sem dregur hingað flesta ferðamenn og er undirstaða sívaxandi ferðaþjónustu.

Náttúran þarfnast einnig verndar hennar sjálfrar vegna. Hún myndar vef þar sem ekkert getur án annars verið. Eftir því sem skilningur á þessu eykst verður brýnna að skoða sérhvert inngrip með hliðsjón af heildinni og því samspili sem maðurinn er svo auðmjúkur hluti af. Þannig er náttúruvernd forsenda lífs á jörðinni til langrar framtíðar.

Næstu skref  felast í því að skipa verkefnisstjórn fyrir næsta áfanga rammaáætlunarinnar og að afla nauðsynlegra upplýsinga um þá kosti sem eru í biðflokki. Þá verður svæðum í verndarflokki komið í friðlýsingarferli, en þar eru margar náttúruperlur á borð við Jökulsá á Fjöllum, Þjórsárver og Torfajökulssvæðið. Verkefni nýrrar verkefnisstjórnar byggir á lögum um rammaáætlun en einnig er dýrmæt leiðsögn í ítarlegu nefndaráliti meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar þingsins þar sem sérstaklega eru dregin fram atriði sem þarfnast frekari skoðunar í næsta áfanga.

Í samþykkt Alþingis felst mikilvæg framtíðarsýn. Hún myndar skýran grunn fyrir atvinnulífið en undirstrikar um leið þýðingu náttúruverndar á Íslandi, núlifandi og komandi kynslóðum til heilla.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum