Hoppa yfir valmynd

Frétt

21. janúar 2013 Utanríkisráðuneytið

Fundur Evrópumálaráðherra ESB og umsóknarríkja

Stefán Haukur Jóhannesson, varaforsætisráðherra Serbíu, Suzana Grubješić, og Aleksandar Andrija Pejovic, aðalsamningamanni Svartfjallalands
Stefán Haukur, Suzana-Grubjesic, varaforsætisráðherra Serbíu, og Aleksandar Pejovic, aðalsamningamaður Svartfjallalands

Stefán Haukur Jóhannesson, aðalsamningamaður Íslands í aðildarviðræðunum við Evrópusambandið, sótti í gær og í dag fund Evrópumálaráðherra ESB og umsóknarríkja, en auk þess tók Stefan Fule framkvæmdastjóri stækkunarmála þátt í honum. Fundurinn fór fram í Dublin en Írland tók við formennsku í ráðherraráði Evrópusambandsins um áramótin. Meginumræðuefni fundarins var hvernig efla má lýðræði á vettvangi Evrópusamvinnunnar. Rætt var um leiðir til að auka lögmæti og ábyrgð stofnana sambandsins nú þegar samvinnan er að aukast meðal annars í efnahags- og gjaldmiðilsmálum, og hvernig efla má þátt þjóðþinga og Evrópuþingsins á því sviði.

Í umræðum á fundinum greindi Stefán Haukur  frá því hvernig Ísland hefur í umsóknarferli sínu lagt áherslu á gagnsæi og samvinnu við ólíka hagsmunahópa. Hvort tveggja hefur reynst vel og innsýn og reynsla hagsmuna- og félagasamtaka hefur styrkt vinnu við mótun samningsafstöðu Íslands. Sömuleiðis hefur þingið gegnt lykilhlutverki frá upphafi samningavinnunnar, sagði Stefán Haukur. Hann gerði einnig grein fyrir nýlegu samkomulagi ríkisstjórnar um að hægja á samningaviðræðunum við ESB fram að kosningum og útskýrði hvað í því felst.

Formennskuáætlun Írlands má nálgast hér

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum