Hoppa yfir valmynd

Frétt

23. janúar 2013 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Grein umhverfis- og auðlindaráðherra í Fréttablaðinu - Kort af Íslandi fyrir alla

Eftirfarandi grein Svandísar Svavarsdóttur umhverfis- og auðlindaráðherra birtisti í Fréttablaðinu 23. janúar 2013.

 

Á hverjum degi neytum við sjálfsagt mun meiri landupplýsinga en nokkurt okkar órar fyrir. Veðurkort eftir kvöldfréttirnar, leiðsögukerfi í bílum og gervihnattatengdir farsímar. Allt eru þetta sívaxandi þættir í nútímalífi sem byggja á landupplýsingum. Sömu grunnupplýsingarnar skipta öllu máli þegar mannvirki eru reist eða samsetning þjóðarinnar greind. Fjölmargar stéttir eru með öllu háðar því í störfum sínum að hafa landupplýsingar aðgengilegar.

Stafræn kort gegna sífellt auknu hlutverki, hvort sem það er vegna rafrænnar stjórnsýslu, skipulagsmála, náttúruverndar, rannsókna, orkumála, almannavarna eða upplýsinga um náttúruna og umhverfismál. Þá eru slíkar upplýsingar undirstaða ferðalaga og útivistar almennings þar sem kort eru notuð í leiðsögutækjum og farsímum til upplýsingamiðlunar. Örnefni eru einnig mikilvæg sem lyklar að sögu, menningu og búskaparháttum þjóðarinnar. Landmælingar Íslands hafa um langt skeið haft með höndum skipulega söfnun þessara gagna og því að byggja upp stafræna kortagrunna og aðgang að gögnum á vefnum.

Hingað til hefur þurft að greiða sérstaklega fyrir aðgang að opinberum landupplýsingum á stafrænu formi, en færst hefur í aukana að slík gögn hafi verið gerð aðgengileg án gjaldtöku í nágrannalöndum okkar. Þetta er ekki að ástæðulausu - í nýlegri erlendri rannsókn kemur fram að í þeim löndum þar sem opinber kortagögn og landupplýsingar eru án gjaldtöku er vöxtur fyrirtækja sem reiða sig á slík gögn 15% meiri en í þeim löndum þar sem gögnin eru seld.

Í ljósi þessa hef ég ákveðið, að tillögu Landmælinga Íslands, að stafræn gögn stofnunarinnar verði gerð gjaldfrjáls og aðgengileg öllum sem á þurfa að halda. Um er að ræða gögn sem unnin hafa verið fyrir almannafé. Með þessari breytingu er almenningi tryggður gjaldfrjáls og greiður aðgangur að þeim. Þetta mun styðja aukna notkun þeirra og ekki síst stuðla að nýsköpun í einkageiranum og í opinberri þjónustu.

Landmælingar Íslands hafa þegar gert kortagögn og loftmyndir aðgengileg til niðurhals á vef sínum, www.lmi.is, án gjaldtöku.

Aðgengi að stafrænum gögnum Landmælinga er mikilvæg varða í átt til opnara og gagnsærra samfélags. Þetta er í anda þeirra áherslna að svo ríkir hagsmunir eigi að vera í þágu almennings en ekki vara á markaði.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum