Hoppa yfir valmynd

Frétt

24. janúar 2013 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Hreindýrakvóti ársins 2013 ákveðinn

Hreindýr.
Hreindýr.

Umhverfisráðherra hefur ákveðið hreindýrakvóta þessa árs að fengnum tillögum frá Umhverfisstofnun. Heimilt verður að veiða allt að 1229 dýr á árinu sem er fjölgun um 220 dýr frá fyrra ári.

Heimildirnar skiptast þannig að leyft verður að veiða 623 kýr alls og 606 tarfa. Veiðin skiptist milli níu veiðisvæða og eru mörk þeirra og fjöldi dýra á hverju svæði tilgreind nánar í auglýsingu sem mun birtast í Lögbirtingarblaðinu.

Heimildirnar eru veittar með fyrirvara um að ekki verði verulegar breytingar á stofnstærð fram að veiðum sem kalli á endurskoðun veiðiheimilda. Veiðitíminn er frá 1. ágúst til og með 15. september, en þó getur Umhverfisstofnun heimilað veiðar á törfum frá og með 15. júlí og lengt veiðitíma kúa til og með 20. september. Þá verður sú nýbreytni að heimilt verður að veiða allt að 22 kýr af 68 á veiðisvæði 8 og allar kýr, þ.e. 25, á veiðisvæði 9, á tímabilinu 1. til 30. nóvember.

Veturgamlir tarfar eru alfriðaðir og miðast tarfaveiði því við tveggja vetra og eldri tarfa. Óheimilt er að veiða kálfa.

Umhverfisstofnun auglýsir og sér um sölu allra veiðiheimildanna.

Auglýsing um hreindýraveiðar árið 2013.


Hreindýr.
Hreindýr.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum