Hoppa yfir valmynd

Frétt

29. janúar 2013 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Ríkið festir kaup á Teigarhorni

Búlandstindur er í landi Teigarhorns.
Teigarhorn - Búlandstindur

Ríkissjóður Íslands hefur að tillögu umhverfis- og auðlindaráðherra fest kaup á óðalsjörðinni Teigarhorni í Djúpavogshreppi. Á jörðinni eru mikilvægar menningar- og náttúruminjar, þar á meðal jarðminjar sem hafa alþjóðlegt verndargildi. 

Teigarhorn er um 2000 hektarar að stærð en á jörðinni er einn þekktasti fundarstaður geislasteina (zeolita) í heiminum. Vegna þessa var hluti jarðarinnar friðlýstur sem náttúruvætti árið 1975. Teigarhorn hefur gegnt mikilvægu hlutverki í sögu og skráningu veðurfars hér á landi. Þar hafa verið stundaðar veðurfarsathuganir síðan 1881 og mælingar á hitafari frá 1873. Þá þykir hús Weyvadts kaupmanns á Teigarhorni meðal mikilvægra menningarminja en það var byggt á árunum 1880–1882.

Gert er ráð fyrir að ríkið taki formlega við jörðinni 15. apríl en farin er af stað vinna við að móta framtíðarfyrirkomulag og hvernig umsjón með svæðinu verður háttað.

Gamli bærinn

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum