Hoppa yfir valmynd

Frétt

31. janúar 2013 Dómsmálaráðuneytið

Námskeið til undirbúnings prófi til að öðlast réttindi til að verða héraðsdómslögmaður

Prófnefnd samkvæmt reglugerð nr. 1095/2007 um próf til að öðlast réttindi til að vera héraðsdómslögmaður, sbr. lög nr. 77/1998 um lögmenn og lög nr. 93/2004, hefur ákveðið að halda námskeið vorið 2013. Prófið skiptist í tvo hluta, auk verklegrar prófraunar.

Kennslugreinar í fyrri hluta eru: Einkamálaréttarfar, sakamálaréttarfar, fullnusturéttarfar, samning lögfræðilegrar álitsgerðar og lögfræðileg skjalagerð. Kennslugreinar í síðari hluta eru: Réttindi og skyldur lögmanna, þar á meðal siðareglur lögmanna og þóknun fyrir lögmannsstörf, málflutningur og önnur störf lögmanna, svo sem samningsgerð og meðferð stjórnsýslumála.

Í tengslum við nám­skeiðið fer fram kynning á rekstri lögmannsstofa og starfsemi Lögmannafélags Íslands og úrskurðarnefndar lögmanna. Auk kennslu í fyrri og síðari hluta er verklegur hluti, sem felst í aðstoð við flutning eins máls fyrir héraðsdómi.

Stefnt er að því að kennsla á fyrri hluta fari fram dagana 18. febrúar til 1. mars 2013. Jafnframt er stefnt að því að próf í fyrri hluta námskeiðsins verði haldin á tímabilinu 8. til 22. mars. Þá er stefnt að því að kennsla í síðari hluta fari fram dagana 2. til 12. apríl 2013 og að próf verði haldin á tímabilinu 15. til 19. apríl 2013. Kennslutímar verði frá 09:15-12:00 og frá 13:15 eða 14:15 til 17:00 eða 18:00. Kennsla fer fram í kennslusal Lögmannafélags Íslands að Álftamýri 9, 108 Reykjavík.

Verklega prófraun skal þreyta eftir að fyrri hluta prófi er lokið og eigi síðar en einu ári eftir að lokið er síðari hluta prófi.

Gjald fyrir þátttöku á fyrri hluta prófraunar er kr. 250.000 og greiðist við skrán­ingu. Gjald fyrir síðari hluta verður ákveðið síðar. Prófgjald er innifalið í nám­skeiðsgjaldi.

Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarkerfi á heimasíðu Lögmannafél­ags Íslands á slóðinni www.lmfi.is. Við skráningu skal leggja fram afrit próf­skírteinis til staðfestingar því að umsækjandi hafi lokið fullnaðarnámi í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi. Hægt er að senda þær upplýsingar með tölvupósti á netfangið: [email protected].

Frestur til að skrá sig á námskeið er til og með 14. febrúar 2013.

Innanríkisráðuneytinu 31. janúar 2013

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum