Hoppa yfir valmynd

Frétt

6. febrúar 2013 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Grein umhverfis- og auðlindaráðherra í Fréttablaðinu - Lög til verndar náttúru Íslands

Eftirfarandi grein Svandísar Svavarsdóttur umhverfis- og auðlindaráðherra birtist í Fréttablaðinu 6. febrúar 2013.

Lög til verndar náttúru Íslands

Í gær birtist grein eftir Lailu Margréti Arnþórsdóttur um frumvarp til náttúruverndarlaga. Hún segir að ýmsu beri að fagna í frumvarpinu en nefnir að í því séu gloppur sem þurfi að staldra við. Segir hún mikilvægt að hlusta eftir röddum þeirra sem kunnugastir eru málum. Það er rétt enda hefur fjöldi sérfræðinga verið kallaður til svo að skýr grunnur sé lagður að löggjöfinni og markmiðum hennar.

Þá er rétt að samráð bætir stefnumótun stjórnvalda umtalsvert. Sú er raunin hér en undirbúningur að framlagningu frumvarpsins hófst haustið 2009. Hafist var við gerð yfirgripsmikillar Hvítbókar sem var megingrundvöllur umræðu á umhverfisþingi 2011. Þar áttu fjölmargir hagsmunaaðilar aðkomu og komu sjónarmiðum sínum á framfæri. Að auki fylgdi Hvítbókinni víðtækt samráð, fundahöld um land allt og umsagnarferli á ólíkum stigum, áður en að eiginlegri frumvarpssmíð kom. Að baki er því mikil og vönduð vinna og meira samráð en tíðkast við gerð frumvarpa.

Það hefur valdið vonbrigðum að ýmsir hafa fjallað um frumvarpið með því að halda fram rangfærslum og upphrópunum. Sem betur fer gildir þó að þar fer yfirleitt fólk sem ann náttúrunni og skilur að um hana verða að gilda skýrar reglur svo ekki verði gengið á gæði hennar.

Í umræddri grein er vikið að hagsmunum hreyfihamlaðra, sem ekki geta ferðast um nema á vélknúnu ökutæki. Aðgengi fatlaðra að náttúrunni verður beinlínis aukið verði frumvarpið að lögum, þar sem gert er ráð fyrir að vegna sérstakra aðstæðna megi veita einstaklingum undaþágur frá banni við akstri utan vega. Þessu dæmi er því miður snúið á haus í grein Lailu.

Áhrif ferðamáta eru mismunandi og því gilda ólík sjónarmið eftir því hvernig ferðast er. Það gefur augaleið að ekki er hægt að aka um Þjórsárver eða önnur slík viðkvæm svæði þótt þar sé unnt að fara gangandi. Röksemdir um jafnræði eiga ekki alltaf við þegar ferðamátar eru bornir saman. Meginmarkmiðið með frumvarpinu er náttúruvernd. Þvínæst að fólk geti notið náttúrunnar – án þess að á hana sé gengið.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum