Hoppa yfir valmynd

Frétt

11. febrúar 2013 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Kvískerjasjóður auglýsir styrki

Merki Kvískerjasjóðs
Kvískerjasjóður

Kvískerjasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2013. Stjórn sjóðsins mun horfa sérstaklega til umsókna sem tengjast störfum og áhugasviði Kvískerjasystkinanna. Umsóknarfrestur er til 15. mars nk. og skal umsóknum skilað í rafrænu formi. Úthlutað verður fyrir miðjan apríl og verður öllum umsóknum svarað.

Umsóknum skal fylgja:

  • Greinagóð lýsing á verkefninu og markmiðum þess.
  • Tímaáætlun, sem gerir grein fyrir framvindu verkefnisins.
  • Gera skal grein fyrir helstu samstarfsaðilum.
  • Gera skal grein fyrir fjárhagsáætlun verkefnisins, framlagi samstarfsaðila og fjárhæð sem sótt er um.

Umsóknir skal senda til formanns sjóðsstjórnar, Sigurlaugar Gissurardóttur, Brunnhóli á Mýrum, 781 Hornafirði, merktar Kvískerjasjóður á netfangið [email protected]. Nánari upplýsingar veittar á sama netfangi eða í síma 478 1029.

Kvískerjasjóður var stofnaður af umhverfisráðuneytinu, til heiðurs systkinunum á Kvískerjum í Öræfum, fyrir framlag þeirra til öflunar þekkingar og rannsókna á náttúru og sögu Austur-Skaftafellssýslu. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að og styrkja rannsóknir á náttúrufari og menningarminjum í Austur-Skaftafellssýslu með veitingu rannsóknastyrkja til einstaklinga og stofnana.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum