Hoppa yfir valmynd

Frétt

1. mars 2013 Dómsmálaráðuneytið

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar erlendis hefst 4. mars

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis vegna alþingiskosninga 27. apríl 2013 hefst 4. mars nk., samkvæmt frétt á vef utanríkisráðuneytisins. Fer hún fram í öllum sendiráðum Íslands, aðalræðisskrifstofum í New York, Winnipeg og Þórshöfn í Færeyjum. Einnig er unnt að kjósa utan kjörfundar eftir samkomulagi hjá kjörræðismönnum Íslands.

Í frétt utanríkisráðuneytisins eru nánari upplýsingar og listi yfir alla kjörræðismenn Íslands og er væntanlegum kjósendum bent á að hafa samband við þá áður en þeir koma til að kjósa.  Athygli er ennfremur vakin á því, að kjósendum ber sjálfum að póstleggja atkvæði sín eða koma þeim á annan hátt í tæka tíð til viðkomandi kjörstjórnar á Íslandi. Gert er ráð fyrir að kjósendur kynni sér sjálfir hverjir eru í framboði og hvaða listabókstafir eru notaðir.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum