Hoppa yfir valmynd

Frétt

12. mars 2013 Dómsmálaráðuneytið

Aðgerðir vegna fjölgunar hælisleitenda

Innanríkisráðherra gerði ríkisstjórn grein fyrir stöðu mála vegna fjölgunar hælisleitenda á fundi í morgun ásamt því að útlista tillögur ráðuneytisins um lausnir á þeim bráðavanda sem nú er uppi. Mikil fjölgun hefur orðið á hælisumsóknum á undanförnum mánuðum. Á fyrstu 65 dögum þessa árs bárust Útlendingastofnun 49 hælisumsóknir en til samanburðar má nefna að 115 umsóknir bárust allt síðasta ár, sem var jafnframt mesti fjöldi umsókna frá árinu 2002. Þá hefur fjölskyldufólki fjölgað í hópi umsækjenda.

Málsmeðferðartími í hælismálum er mjög langur og í árslok 2012 áttu 140 einstaklingar umsókn um hæli til meðferðar hjá íslenskum stjórnvöldum en þar á meðal eru mál einstaklinga sem óskuðu hælis á árunum 2010 og 2011.

Reykjanesbær fer með þjónustu við hælisleitendur samkvæmt samningi við
Útlendingastofnun frá árinu 2004. Bærinn hefur lýst því yfir að ekki sé unnt að taka á móti fleiri hælisleitendum en sem sakir standa sinnir Reykjanesbær þjónustu við um 150 hælisleitendur.

Innanríkisráðherra hefur lagt til að bregðast við þessu með eftirfarandi hætti:

  • Gripið verði þegar í stað til ráðstafana til að stytta málsmeðferðartíma, jafnt hjá Útlendingastofnun og innanríkisráðuneytinu. Í því skyni verði starfsfólki fjölgað tímabundið og sett verði reglugerð um flýtimeðferð hælisumsókna.
  • Í samvinnu við Reykjanesbæ verði óskað eftir liðsinni Rauða kross Íslands um aðkomu að búsetumálum til skamms tíma.
  • Komist verði að samkomulagi um framtíðarskipan búsetuúrræða hælisleitenda hér á landi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum