Hoppa yfir valmynd

Frétt

15. mars 2013 Forsætisráðuneytið

Heillaóskir til nýs forsætisráðherra Kína

Forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir og fyrrv. forsætisráðherra Kína, Wen Jiabao, í opinberri heimsókn hans til Íslands í apríl 2012
Forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir og fyrrv. forsætisráðherra Kína, Wen Jiabao, í opinberri heimsókn hans til Íslands í apríl 2012

Forsætisráðherra hefur sent nýkjörnum forsætisráðherra Kína, Li Keqiang, árnaðaróskir með embættið.  Forsætisráðherra lýsir ánægju sinni með vaxandi samskipti og samstarf þjóðanna á ýmsum sviðum, svo og auknum tækifærum sem muni felast í því að ljúka fríverslunarsamningi. 

Jafnframt hefur forsætisráðherra sent kveðjubréf til fráfarandi forsætisráðherra Kína, Wen Jiabao, sem heimsótti Ísland í apríl síðastliðnum. Í þeirri heimsókn var lagður grunnur að og undirritaðir fjölmargir samstarfssamningar, auk þess sem ákveðið var að efla vinnu við fríverslunarviðræðurnar sem þá höfðu staðið frá 2007.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum