Hoppa yfir valmynd

Frétt

3. apríl 2013 Dómsmálaráðuneytið

Upplýsingar um skráningu á kjörskrá

Kjósendur geta nú kannað hvar þeir eru á kjörskrá í alþingiskosningunum laugardaginn 27. apríl næstkomandi á kosningavef innanríkisráðuneytisins, kosning.is, og á vefnum island.is. Þegar slegin er inn kennitala kemur upp nafn, lögheimili og sveitarfélag. Í mörgum tilvikum birtast einnig upplýsingar um kjörstað og kjördeild.

Þjóðskrá Íslands sér um gerð kjörskrárstofna og sveitarstjórnir gera kjörskrár á grundvelli þeirra. Enginn getur neytt kosningarréttar nema nafn hans sé á kjörskrá þegar kosning fer fram. Á kjörskrárstofni eru allir íslenskir ríkisborgarar sem skráðir voru með lögheimili í ákveðnu sveitarfélagi samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár 23. mars 2013 og fæddir eru 27. apríl 1995 og fyrr. Enn fremur eru á kjörskrárstofni þeir íslenskir ríkisborgarar, sem lögheimili eiga erlendis en eiga kosningarrétt samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum