Hoppa yfir valmynd

Frétt

5. apríl 2013 Dómsmálaráðuneytið

Fleiri lögreglumenn verða ráðnir til að rannsaka kynferðisbrotamál

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að verja nú þegar 79 milljónum króna í ýmsar forgangsaðgerðir til að bregðast við neyðarástandi í kynferðisbrotum gegn börnum. Meðal annars á að ráða fleiri lögreglumenn til að rannsaka kynferðisbrotamál, ráða aðstoðarsaksóknara við embætti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, ráða saksóknara við embætti ríkissaksóknara og að fjölga sérfræðingum í Barnahúsi.

Þrír ráðherrar kynntu tillögur samráðshóps um aðgerðir fyrir þolendur kynferðisbrota.
Þrír ráðherrar kynntu tillögur samráðshóps um aðgerðir fyrir þolendur kynferðisbrota.

Þrír ráðherrar, Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra og Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra kynntu tillögur nefndar fulltrúa fjögurra ráðuneyta á blaðamannafundi í dag. Forsætisráðherra skipaði í ársbyrjun samráðshóp til að setja fram tillögur um sérhæfða framkvæmd stjórnvalda til að sporna gegn kynferðislegu ofbeldi, eflingu lögreglu og ákæruvalds og bætt úrræði fyrir þolendur kynferðisbrota, einkum börn. Einnig átti hópurinn að leggja til aðgerðir um bætta skráningu, eftirlit og meðferð með dæmdum kynferðisbrotamönnum. Hópurinn skilaði tillögum sínum í dag, 15 forgangstillögum og 12 til viðbótar sem lagt er til að ráðist verði í á næsta ári. Auk framantalinna ráðuneyta átti mennta- og menningarmálaráðuneyti fulltrúa í hópnum en mennta- og menningarmálaráðherra hafði ekki tök á að sitja fundinn.

Í samráðshópnum sátu Ágúst Ólafur Ágústsson formaður, frá forsætisráðuneyti, Halla Gunnarsdóttir og Þórunn Hafstein frá innanríkisráðuneyti, Ingibjörg Broddadóttir og Sindri Kristjánsson frá velferðarráðuneyti og Jóna Pálsdóttir frá mennta- og menningarmálaráðuneyti.

Ráðherrarnir þrír sögðu brýnt að grípa til aðgerða til að sporna við fjölgun tilkynntra mála til lögreglu sem snertu kynferðisofbeldi en víðast hvar um landið hafa jafnmörg mál eða jafnvel fleiri verið tilkynnt til lögreglu á fyrstu þremur mánuðum ársins 2013 og voru tilkynnt allt árið í fyrra. Yfir 100 kynferðisbrot gegn börnum hafa verið tilkynnt til lögreglu frá áramótum en til samanburðar bárust 141 mál til lögreglu allt síðasta ár.

Þrátt fyrir öflugt starf síðustu ára til að vinna gegn kynferðisofbeldi og bætta málsmeðferð er enn verk að vinna. Nefndin hitti á fimmta tug gesta á undanförnum tveimur mánuðum. Allir gestir nefndarinnar lýstu yfir miklum áhyggjum af gríðarlegri aukningu á tilkynntum kynferðisbrotum það sem af er þessu ári. Ýmsir gestir nefndarinnar líktu núverandi stöðu sem „neyðarástandi“ sem þyrfti að bregðast við hratt og örugglega.

Þá hafa frá áramótum leitað helmingi fleiri börn í Barnahús en gera að jafnaði á jafnlöngu tímabili. Um tvö börn hafa nú komið daglega í Barnahús frá áramótum en í fyrsta skipti í sögu Barnahúss þurfa börn að bíða eftir þjónustu Barnahúss. Nú bíður 41 barn eftir þjónustu í Barnahúsi. Um 270-300 börn hafa leitað til Barnahúss á ári en um 470 tilkynningar berast til barnaverndarnefnda vegna gruns um kynferðislegt ofbeldi á ári.

Nefndin telur það því mjög áríðandi að styrkja lögreglu, ákæruvald og Barnahús þegar í stað til að takast á við aukinn málafjölda sem enginn sá fyrir. Þá er áríðandi að efla enn frekar forvarnar- og fræðslustarf, auka við meðferðarúrræði fyrir brotaþola og brotamenn og styðja við bakið á þeim félagasamtökum sem sinna þjónustu við þolendur og aðstandendur þeirra. Það er því samhljómur milli tillagna nefndarinnar og tillagna hins þverpólitíska undirhóps allsherjarnefndar Alþingis sem voru nýlegar kynntar.

Alls leggur nefndin til 27 tillögur til úrbóta og er heildarkostnaður við þær um 290 milljónir króna þar með talin kaup á nýju Barnahúsi. Í ljósi þess neyðarástands sem hefur skapast vegna kynferðisbrota gegn börnum var tillögunum forgangsraðað eftir mikilvægi og var það niðurstaða nefndarinnar að 15 tillögur þyldu enga bið. Þar er m.a. gert ráð fyrir 11 nýjum stöðugildum til mæta brýnni þörf.

Forgangstillögur nefndarinnar:

1.   Tillaga um kaup á nýju Barnahúsi en þessi tillaga er háð samþykki Alþingis.

2.   Tillaga um landssamráð barnaverndaryfirvalda, lögreglu og ákæruvalds.

3.   Tillaga um svæðissamráð sveitarfélaga, lögreglustjóra og barnaverndarnefnda.

4.   Tillaga um fjölgun sérfræðinga í Barnahúsi.

5.   Tillaga um stuðning gagnvart aðstandendum brotaþola.

6.   Tillaga um eflingu Vitundarvakningar gegn kynferðislegu ofbeldi.

7.   Tillaga um gerð fræðsluefnis um kynferðisofbeldi.

8.   Tillaga um aukinn stuðning við félagasamtök sem sinna þjónustu fyrir brotaþola.

9.   Tillaga um fjölgun lögreglumanna sem sinna rannsókn kynferðisbrota.

10. Tillaga um ráðningu aðstoðarsaksóknara við embætti Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

11. Tillaga um sálgæslu fyrir lögreglumenn og ákærendur í kynferðisbrotum gegn börnum.

12. Tillaga um ráðningu saksóknara við embætti ríkissaksóknara.

13. Tillaga um áhættumat á dæmdum kynferðisbrotamönnum.

14. Tillaga um skráningu kynferðisbrotamanna.

15. Tillaga um ráðningu sálfræðings við embætti Fangelsismálastofnunar.

Kostnaðurinn við forgangstillögur nefndarinnar á þessu ári er 79 milljónir króna fyrir utan kaup á nýju Barnahúsi. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að mæta þessum kostnaði nú þegar vegna þess neyðarástands skapast hefur vegna kynferðisbrota gegn börnum.

Þá leggur ríkisstjórnin til að tillagan um kaup á nýju Barnahúsi fyrir allt að 110 milljónir kr. að teknu tilliti til söluandvirðis á núverandi húsnæði sem bætist við umrædda upphæð, verði tryggð með aukafjárveitingu með fyrirvara um samþykki Alþingis.

Ríkisstjórnin hefur því ákveðið að 189 milljónum króna verði á þessu ári varið í kaup á nýju Barnahúsi og aðrar forgangstillögur til að bregðast við því neyðarástandinu.

Þrír ráðherrar kynntu tillögur samráðshóps um aðgerðir fyrir þolendur kynferðisbrota.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum