Hoppa yfir valmynd

Frétt

16. apríl 2013 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Skýrsla um ástand friðlýstra svæða kynnt í ríkisstjórn

Frá Geysissvæðinu.
Frá Geysissvæðinu.

Svandís Svavarsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, kynnti í ríkisstjórn í morgun skýrslu Umhverfisstofnunar um ástand friðlýstra svæða. Sex svæði eru nú talin í verulegri hættu sem er fækkun um fjögur svæði ef miðað er við sambærilegan lista sem gefinn var út fyrir tveimur árum.

Svæðin sem fjallað er um í skýrslunni eru flokkuð í tvo hópa og lenda á rauðum eða appelsínugulum lista eftir því hversu alvarlegt ástand þeirra er talið. Svæði á rauða listanum metur Umhverfisstofnun undir svo miklu álagi að þar þurfi þegar að bregðast við. Svæði á appelsínugula listanum eru svæði sem stofnunin telur vera undir töluverðu álagi sem fylgjast þurfi grannt með og bregðast við eftir atvikum.

Sex svæði eru nú talin í verulegri hættu en þau eru Friðland að fjallabaki, Geysir, Helgustaðanáma, Reykjanesfólkvangur, Laugarás og verndarsvæði Mývatns og Laxár en tvö síðastnefndu svæðin voru áður á appelsínugulum lista. Árið 2010 voru svokölluð rauð svæði tíu talsins en frá því að fyrri skýrslan kom út hafa fjögur ný svæði, Skútustaðagígar, Skógafoss, Háubakkar og Rauðhólar bæst á appelsínugula listann. Nokkur svæði hafa flust milli flokka og tvö svæði, Dynjandi og Hraunfossar eru ekki lengur á lista yfir svæði í hættu. Staða svæða í skýrslunni er sýnd í töflunni hér fyrir neðan.

Rauð svæði 2010

 

Appelsínugul svæði 2010

Rauð svæði 2012

 

Appelsínugul svæði 2012
Dyrhólaey Dynjandi Friðland að Fjallabaki Dyrhólaey
Friðland að Fjallabaki Eldborg í Bláfjöllum Geysir Grábrókargígar
Geysir Fossvogsbakkar Helgustaðanáma Gullfoss
Grábrókargígar Geitland Reykjanesfólkvangur Hveravellir
Gullfoss Hraunfossar Laugarás Surtarbrandsgil
Helgustaðanáma Kringilsárrani Verndarsvæði Mývatns og Laxár Teigarhorn
Hveravellir Laugarás   Eldborg í Bláfjöllum
Reykjanesfólkvangur Verndarsvæði Mývatns og Laxár   Fossvogsbakkar
Surtarbrandsgil     Geitland
Teigarhorn     Kringilsárani
      Skútustaðagígar
      Skógafoss
      Háubakkar
      Rauðhólar

Heimild: Ástand friðlýstra svæða, skýrsla Umhverfisstofnunar 2013, bls. 5

Mat sitt byggir Umhverfisstofnun á svokallaðri SVOT greiningu, en hún byggir á styrkleika, veikleika, ógnum og tækifærum viðkomandi svæðis.

Ástand friðlýstra svæða, skýrsla Umhverfisstofnunar.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum