Hoppa yfir valmynd

Frétt

16. apríl 2013 Utanríkisráðuneytið

Skýrsla um samningaviðræður Íslands um aðild að Evrópusambandinu

Staða viðræðna í apríl 2013
Staða viðræðna í apríl 2013

Út er komin skýrsla um stöðu og framvindu samningaviðræðnanna um aðild Íslands að Evrópusambandinu sem utanríkisráðherra boðaði á Alþingi í umræðum um utanríkismál í febrúar síðastliðinn. Í henni er yfirlit um hvernig haldið hefur verið á viðræðunum af Íslands hálfu, bæði innanlands og gagnvart aðildarríkjum og stofnunum ESB, frá því að Ísland sótti um og ítarlega gerð grein fyrir stöðu mála í viðræðunum nú þegar samningar eru hafnir um 4/5 allra málaflokka.

Meðal helstu atriða sem fram koma í skýrslunni eru:

  • Ísland hefur þegar afhent samningsafstöðu sína í 29 af þeim 33 efnislegu samningsköflum sem viðræðurnar snúast um og á einungis eftir að fullgera samningsafstöðu sína í fjórum köflum. Þegar öll mál eru komin upp á samningaborðið hefst lokaáfangi viðræðnanna.  
  • Viðræðum er þegar lokið um 11 samningskafla t.d. um utanríkis-, öryggis- og varnarmál þar sem sérstök yfirlýsing staðfestir herleysi Íslands komi til aðildar. Viðræður standa yfir um 16 samningskafla þar á meðal mikilvæga málaflokka á borð við byggðamál, umhverfismál, orkumál og efnahags- og peningamál.
  • Samtals eiga um 200 manns víðs vegar að sæti í samningahópum Íslands. Náið samráð hefur verið haft við Alþingi, sveitarfélög, hagsmunahópa og félagasamtök. Góður andi hefur ríkt í samningaliði Íslands sem skipað er færustu sérfræðingum. Öll helstu gögn í aðildarferlinu hafa verið birt jafnóðum á vefnum viðræður.is.
  • Beinn bókfærður kostnaður við viðræðurnar nam alls 300,7 milljónum króna á árunum 2010 til og með 2012 sem er ríflega innan fjárheimilda Alþingis. Sá árangur hefur náðst með aðhaldi í ferða- og sérfræðikostnaði, og með tilfærslu starfsmanna og verkefna. Óbeinn kostnaður svo sem við þýðingar er þó nokkur.
  • Áætlað er að samanlagður IPA-stuðningur við Ísland samkvæmt landsáætlunum 2011, 2012 og 2013 nemi 6,5 milljörðum króna en stuðningurinn gerir ráð fyrir ákveðnu mótframlagi Íslands. Markmið IPA er að styrkja íslenska stjórnsýslu og hrinda í framkvæmd verkefnum um allt land á sviði atvinnu- og byggðamála.
  • Virkt samráð hefur verið haft við öll aðildarríki ESB í aðildarferlinu sem og stofnanir ESB í Brussel. Staða Íslands sem umsóknarríkis hefur einnig nýst við að gæta íslenskra hagsmuna í víðara samhengi og styrkja samskiptin við Evrópu.

Nánar má lesa um ofangreint og önnur málefni tengd viðræðunum í skýrslunni svo sem um aðdraganda umsóknar Íslands, stækkunarferli ESB, samskipti Íslands við stofnanir og aðildarríki ESB, og um upplýsingar til almennings.


Skýrsla um samningaviðræður Íslands um aðild að Evrópusambandinu (pdf)

Skýrslan á issuu formati

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum