Hoppa yfir valmynd

Frétt

18. apríl 2013 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Dagskrá á degi umhverfisins

Hjalparfoss.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið efnir til dagskrár miðvikudaginn 24. apríl næstkomandi í tilefni af degi umhverfisins, sem í ár ber upp á sumardaginn fyrsta. Efnt verður til málþings um loftgæði og lýðheilsu auk þess sem Svandís Svavarsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra afhendir viðurkenningar fyrir störf á sviði umhverfismála á sérstakri hátíðarsamkomu.

Dagur umhverfisins er þann 25. apríl næstkomandi en það er fæðingardagur náttúrufræðingsins og læknisins Sveins Pálssonar. Í tilefni dagsins stendur umhverfis- og auðlindaráðuneytið í samvinnu við velferðarráðuneytið fyrir málþingi undir yfirskriftinni Hreint loft – betri heilsa, en á dögunum kom út samnefnt rit stýrihóps ráðuneytanna tveggja um loftgæði og lýðheilsu.

Hátíðarsamkoma umhverfis- og auðlindaráðuneytisins verður í Hannesarholti við Grundarstíg og hefst kl. 13. Þar mun Svandís Svavarsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra afhenda viðurkenningar fyrir störf á sviði umhverfismála. Kuðungurinn verður veittur fyrirtæki sem hefur skarað fram úr í umhverfismálum og Varðliðar umhverfisins er viðurkenning sem veitt er grunnskólabörnum fyrir verkefni á sviði umhverfismála.

Aðrir viðburðir í tengslum við dag umhverfisins

  • Umhverfisnefnd Garðabæjar skipuleggur fræðslugöngu sunnudaginn 28. apríl upp að Vífilsstaðaseli ofan Grunnuvatna undir leiðsögn Ragnheiðar Traustadóttur, fornleifafræðings. Mæting er kl. 13:00 við Vífilsstaðavatn við gamla torfkofann við bílastæðið.
  • Kötlusetur í Vík í Mýrdal býður uppá erindi Jóhanns Óla Hilmarson um fugla í Mýrdal á degi umhverfisins, 25. apríl kl. 15:00.
  • Akraneskaupstaður efnir til dagskrár þann 26. apríl í tilefni af degi umhverfisins.

Greint verður frá fleiri viðburðum hér jafn óðum og upplýsingar um þá berast.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum