Hoppa yfir valmynd

Frétt

28. maí 2013 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Akstursgjald ríkisstarfsmanna - auglýsing nr. 1/2013

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið akstursgjald í aksturssamningum ríkisstarfsmanna og ríkisstofnana sem hér segir:

Almennt gjald

Fyrstu 10.000 km, kr. 116,00 pr. km
Frá 10.000 til 20.000 km, kr. 104,50 pr. km
Umfram 20.000 km, kr. 93,00 pr. km

Við útreikning á sérstöku gjaldi skal bæta 15% álagi á almenna gjaldið og við útreikning á torfærugjaldi skal bæta 45% álagi á almenna gjaldið.

Akstursgjald þetta gildir frá og  með 1. júní 2013. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 1/2012 dagsett 8. maí 2012.
Vakin er athygli á því að auglýsingar ferðakostnaðarnefndar eru birtar  á vefsíðu fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

Þar er auk þess að finna reglur nefndarinnar um greiðslu dagpeninga erlendis og greinargerð um forsendur útreikninga akstursgjalds og dagpeninga. Veffangið er www.fjarmalaraduneyti.is/ferdakostnadur.


Reykjavík, 24. maí 2013.
Ferðakostnaðarnefnd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum