Hoppa yfir valmynd

Frétt

4. júní 2013 Forsætisráðuneytið

Leiðtogafundi Barentsráðsins í Kirkenes lauk í dag

Fulltrúar ríkja Barentsráðsins á leiðtogafundi í Kirkenes í Noregi
Fulltrúar ríkja Barentsráðsins á leiðtogafundi í Kirkenes í Noregi

Forsætisráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, tók þátt í leiðtogafundi Barentsráðsins í dag. Fundurinn markar 20 ára samstarf ríkja Barentsráðsins og fór fram í Kirkenes í Noregi, sem gegnir nú formennsku í Barentsráðinu. Ísland hefur verið aðili að ráðinu frá upphafi og snýr samstarfið að mikilvægum þáttum sem varða mannauð, sjálfbærni, umhverfi og auðlindir á svæðinu.

Í yfirlýsingu leiðtogafundarins koma meðal annars fram áherslur sem varða norð-austur siglingaleiðina, endurnýjanlega orkugjafa og mikilvægi þróunar á svæðinu, bæði hvað varðar samgöngur, innviði og mannauð.  Aukið samstarf ríkja Barentsráðsins hefur skapað aukið traust og samráð, sem er mikilvægt fyrir framhaldandi þróun.

Auk Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs, tóku Jyrki Katainen, forsætisráðherra Finnlands og Dmitry Medvedev, forsætisráðherra Rússlands þátt í leiðtogafundinum, svo og utanríkisráðherrar Svíþjóðar og Danmerkur og varaforseta leiðtogaráðs Evrópusambandsins.  Einnig tóku þátt fulltrúi svæðissamstarfs Barentssvæðisins, frumbyggja og samtaka ungs fólks á svæðinu.

Í erindi forsætisráðherra á fundinum ræddi hann meðal annars mikilvægi samstarfs ríkja Barentsráðsins í ljósi sívaxandi áhuga á norð-vestur siglingaleiðinni, aukinni áherslu á umhverfismál og sjálfbærni. Þátttaka frumbyggja í störfum ráðsins væri verðmæt og þar lægi menningararfur sem ekki mætti gleymast í samfélagi ríkjanna. „Það var að mínu mati áhugavert hvað er mikill samhljómur á milli okkar ríkja og aðila að Barentsráðinu um hvaða tækifæri og hvaða áskoranir felast í sívaxandi áhuga og ásókn í þetta svæði.  Við Íslendingar getum stóraukið okkar samstarf, til dæmis við Finna, Norðmenn og Rússa um lausnir á þessum vettvangi“ sagði forsætisráðherra eftir fundinn.  „Ég nefndi sérstaklega í umræðum sem fóru fram á fundinum þann áhuga sem Ísland hefur á að vera lykilaðili varðandi alþjóðlegt björgunar- og leitarsamstarf á þessum vettvangi og við munum halda áfram að vinna að þeim málum á þessum vettvangi, en einnig í öðru fjölþjóðasamstarfi.“

Forsætisráðherra átti einnig samtal við Björn Gunnarsson, framkvæmdastjóra Miðstöðvar um norðurslóðaflutninga (Center for High North Logistics), í höfuðstöðvum fastaskrifstofu Barentsráðsins. Miðstöðin safnar og miðlar upplýsingum sem nýtast við siglingaleiðir og flutninga á þessu svæði.

Í gær átti forsætisráðherra tvíhliða fundi með forsætisráðherrum Finnlands, Noregs og Rússlands og eru upplýsingar um þá fundi að finna hér á vef forsætisráðuneytisins.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum