Hoppa yfir valmynd

Frétt

27. júní 2013 Utanríkisráðuneytið

Ban Ki-moon til Íslands

Ban Ki-moon

Ban Ki-moon, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, heimsækir  Ísland 2.-3.júlí næstkomandi. Aðalframkvæmdastjórinn kemur til Íslands í boði utanríkisráðherra, Gunnars Braga Sveinssonar og fundar með honum í upphafi heimsóknar. Hann mun ennfremur eiga fund með forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, sækja Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra heim í forsætisráðherrabústaðinn á Þingvöllum og heimsækja Alþingi.

Ban talar á opnum fyrirlestri í Hátíðarsal Háskóla Íslands 2. júlí undir heitinu: Ísland og Sameinuðu þjóðirnar: Sjálfbær framtíð fyrir alla. Fyrirlesturinn fer fram á ensku, hann er öllum opinn og hefst kl. 15:00.

Þá mun hann kynna sér starfsemi skóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og jarðhitanýtingu með heimsókn í Hellisheiðarvirkjun og áhrif loftslagsbreytinga á jökla Íslands.

Aðalframkvæmdastjóri SÞ sótti Ísland síðast heim þegar Kofi Annan kom hingað árið 1997.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum