Hoppa yfir valmynd

Frétt

16. júlí 2013 Forsætisráðuneytið

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, átti í dag fund með Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins

forsætisráðherra og Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra og Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, átti í dag fund með Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, í höfuðstöðvum þess í Brussel.

Forsætisráðherra ræddi meðal annars við framkvæmdastjórann um framtiðaráskoranir bandalagsins, til dæmis vegna nýrra ógna, breyttra landfræðilegra áherslna og aukinna krafna um hagkvæmni og hagræðingu þegar kreppir að í efnahag bandalagsríkja.

Rætt var um fyrirhuguð loftrýmisgæsluverkefni bandalagsríkja á Íslandi næstu árin, ekki síst þá áhugaverðu þróun að Finnland og Svíþjóð munu nú taka þátt í loftrýmisgæsluverkefni með Noregi.  Verður það í fyrsta sinn sem norrænu samstarfsþjóðirnar tvær koma að slíku verkefni og er það mikilvægt skref, byggt á stefnumörkun sem fram kom í skýrslu Thorvald Stoltenberg 2009, m.a. um nánara norrænt samstarf á sviði varnar- og öryggismála.

Forsætisráðherra lagði áherslu á óbreytta stefnu ríkisstjórnarinnar í utanríkis- og varnarmálum þar sem þátttaka Íslands í Atlantshafsbandalaginu sé meginstoð í vörnum Íslands. Tengsl og samstarf við öll bandalagsríkin væri mikilvægur þáttur í að styrkja og efla stöðu Íslands að þessu leyti.  Þátttaka Íslands í verkefnum Atlantshafsbandalagsins þar sem sérfræðiþekking og reynsla nýtist á ýmsum sviðum, verður áfram tryggð.

Forsætisráðherra bauð framkvæmdastjóranum að heimsækja Íslands við fyrsta tækifæri og tók framkvæmdastjórinn vel í það.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum