Hoppa yfir valmynd

Frétt

2. ágúst 2013 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-júní 2013

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrri helming ársins 2013 liggur nú fyrir.

Staða handbærs fjár frá rekstri batnaði miðað við sama tímabil 2012 og var neikvætt um 12,4 ma.kr. en var neikvætt um 19,2 ma.kr. 2012.

Tekjur jukust um 8,3 ma.kr. milli ára og gjöld um 8,3 ma.kr. Viðskiptahreyfingar höfðu jákvæð áhrif á handbært fé um 4,2 ma.kr. á móti neikvæðum áhrifum 2012 um 2,5 ma.kr.

Þessi útkoma er betri en áætlað var þar sem gert var ráð fyrir að handbært fé yrði neikvætt um 25,8 ma.kr. sem skýrist að mestu með því að dreifing útgjalda innan ársins reyndist önnur en gert hafði verið ráð fyrir.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum