Hoppa yfir valmynd

Frétt

12. ágúst 2013 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra ræðir stöðu Norðurlandanna í Evrópu

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hélt í dag erindi og tók þátt í umræðum um stöðu Norðurlandanna í Evrópu í Arendal, Noregi. Var viðburðurinn liður í dagskrá Arendalsvikunnar, sem er vettvangur stjórnmála- og atvinnulífs í Noregi til umræðu og skoðanaskipta. Í ræðu sinni lagði forsætisráðherra áherslu á gildi og mikilvægi Norðurlandasamstarfs sem stæði á sterkum grunni. Einnig ræddi forsætisráðherra þróunina á norðurslóðum og mikilvægi þess að Norðurlöndin auki meðal annars samstarf sitt á vettvangi Norðurskautsráðsins. Þá ræddi ráðherrann stöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu.

Forsætisráðherra átti ennfremur tvíhliða fundi með Lars Løkke Rasmussen, fyrrverandi forsætisráðherra Danmerkur og formanni Venstre, og Liv Signe Navarsete, ráðherra sveitarstjórnarmála í Noregi og formanni Miðflokksins. Einnig fundaði ráðherra með Marit Nybakk, forseta Norðurlandaráðs, en Ísland tekur við formennsku í Norrænu ráðherranefndinni á næsta ári. Þá kynnti forsætisráðherra sér starfsemi Háskóla norðursins og fundaði með Lars Kullerud, forseta skólans, sem aðsetur hefur í Arendal.

Í kvöld verður forsætisráðherra viðstaddur kappræður leiðtoga stjórnmálaflokka Noregs í Arendal, en kappræðurnar marka eiginlegt upphaf kosningabaráttunnar í Noregi þar sem kosið verður til þings hinn 9. september næst komandi.

Ræða Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra um stöðu Norðurlandanna í Evrópu, 12. ágúst 2013 (á dönsku)

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum