Hoppa yfir valmynd

Frétt

27. ágúst 2013 Heilbrigðisráðuneytið

Fleiri aldurshópar öðlast rétt til gjaldfrjálsra tannlækninga barna 1. september

Bætt tannheilsa
Hjá tannlækni

Þann 1. september öðlast þriggja ára börn og börn á aldrinum 12–14 ára rétt á gjaldfrjálsum tannlækningum samkvæmt samningi Sjúkratrygginga Íslands og Tannlæknafélags Íslands. Í fyrsta áfanga samningsins sem tók gildi 14. maí síðastliðinn var rétturinn einskorðaður við 15, 16 og 17 ára börn. Greiðsluþátttaka sjúkratrygginga er háð því að börnin séu skráð hjá heimilistannlækni.

Þegar hafa 12.500 börn verið skráð með heimilistannlækni. Skráning fer fram í gegnum Réttindagátt Sjúkratrygginga Íslands en tannlæknar geta einnig séð um skráninguna. Sjúkratryggingar greiða tannlækningarnar að fullu fyrir utan 2.500 kr. árlegt komugjald.

Samningurinn tekur strax til allra barna í bráðavanda

Samningurinn tekur einnig til barna í bráðavanda sem búa við erfiðar félagslegar aðstæður þótt þau falli ekki enn undir ofangreind aldursmörk. Í slíkum tilvikum skal tilvísun berast Sjúkratryggingum Íslands frá heilsugæslu, barnaverndar- eða félagsmálayfirvöldum og umsókn frá tannlækni. Mikilvægt er að barnaverndar- og félagsmálayfirvöld komi framangreindum upplýsingum til skjólstæðinga sinna sem falla undir þessi skilyrði.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum