Hoppa yfir valmynd

Frétt

4. september 2013 Forsætisráðuneytið

Norrænir leiðtogar funduðu með Bandaríkjaforseta

Leiðtogar Norðurlandanna ásamt forseta Bandaríkjanna
Leiðtogar Norðurlandanna ásamt forseta Bandaríkjanna
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra fundaði í kvöld með leiðtogum Norðurlandanna og forseta Bandaríkjanna í Stokkhólmi. Meðal umræðuefna voru efnahagsmál, loftslagsmál, málefni norðurslóða og utanríkis- og öryggismál.

Forsætisráðherra leiddi umræðu um norðurslóðir og fjallaði meðal annars um þau tækifæri og áskoranir sem fælust í breytingum sökum loftslagsbreytinga, jafnt í efnahagslegu, félagslegu, umhverfislegu og öryggislegu tilliti. Áréttaði ráðherra mikilvægi svæðisbundinnar samvinnu, m.a. innan vébanda Norðurskautsráðsins.

Undir öðrum umræðuliðum kom forsætisráðherra meðal annars inn á möguleika jarðhita og reynslu Íslands þar að lútandi, meðal annars í þróunarsamvinnu, og mikilvægi útbreiðslu þekkingar í austanverðri Afríku sem meðal annars á sér stað í Jarðhitaskóla háskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Einnig fjallaði forsætisráðherra um mikilvægi samstarfs Norðurlandanna við Eystrasaltsríkin.

Jafnframt voru ræddar öryggisáskoranir 21. aldar og auknir möguleikar Norðurlandanna og Bandaríkjanna til samstarfs á ýmsum sviðum, m.a. á sviði öryggismála, orkumála og samstarfs á norðurslóðum, ekki síst á vettvangi Norðurskautsráðsins.

Málefni Miðausturlanda, einkum Sýrlands, fengu ítarlega umfjöllun á fundinum. Bandaríkjaforseti útlistaði rök Bandaríkjastjórnar fyrir takmarkaðri hernaðaríhlutun, sem nú er til umfjöllunar á Bandaríkjaþingi. Forsætisráðherra áréttaði mikilvægi þess að leita áfram friðsamlegra lausna á deilunni. Þar hefði öryggisráð Sameinuðu þjóðanna meginhlutverki að gegna og brýnt væri að öryggisráðið axlaði ábyrgð á því hlutverki sínu.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum