Hoppa yfir valmynd

Frétt

27. september 2013 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands - auglýsing nr. 3/2013

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:

  1. Gisting og fæði í einn sólarhring, kr. 22.355
  2. Gisting í einn sólarhring, kr. 11.555
  3. Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag, kr. 10.800
  4. Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag, kr. 5.400

Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. október 2013. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 2/2013 dags. 24. maí 2013.

Í gildi eru hagstæðir rammasamningar Ríkiskaupa við hótel og gistihús um gistingu og veitingar fyrir ríkisstarfsmenn á ferðalögum innanlands. Nánari upplýsingar um samningana er að finna á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is, með aðgangsupplýsingum sem stofnunin veitir, [email protected].

Nefndin fer þess á leit við ráðuneyti og stofnanir að viðmiðunarfjárhæðir um greiðslur dagpeninga og rammasamningar um gistingu og veitingar verði kynntir starfsfólki.

Vakin er athygli á því að auglýsing ferðakostnaðarnefndar um dagpeninga er á vefsíðu fjármála- og efnahagsráðuneytisins og er veffangið eftirfarandi: www.fjarmalaraduneyti.is/ferdakostnadur.

Reykjavík, 27. september 2013
Ferðakostnaðarnefnd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum