Hoppa yfir valmynd

Frétt

4. desember 2013 Dómsmálaráðuneytið

Innanríkisráðuneytið gerir þjónustusamning við Íslenska ættleiðingu

Innanríkisráðuneytið og Íslensk ættleiðing hafa gert með sér þjónustusamning sem gilda á út árið 2014. Samningurinn kveður á um að Íslensk ættleiðing, sem hefur löggildingu innanríkisráðherra til að annast milligöngu um ættleiðingar á börnum frá tilteknum erlendum ríkjum, veiti skilgreinda þjónustu sem því tengist. Fjárveitingar til verkefna samningsins eru ákveðnar með fjárlögum hverju sinni.

Frá undirskrift þjónustusamnings Íslenskrar ættleiðingar og innanríkisráðuneytisins.
Frá undirskrift þjónustusamnings Íslenskrar ættleiðingar og innanríkisráðuneytisins.

Í samningnum er vísað í heimildir er varða ættleiðingar í lögum og reglugerðum og að starfsemi Íslenskrar ættleiðingar skuli vera í samræmi við þau. Kveðið er á um ábyrgð hvors aðila um sig í samningnum, að ráðuneytið leggi til fjármagn og að Íslensk ættleiðing skuli tryggja að farið sé að markmiðum samningsins og veita þá þjónustu sem kveðið er á um. Meðal verkefna Íslenskrar ættleiðingar er að annast meðferð umsókna kjörforeldra um ættleiðingu, samskipti við upprunaríki, sýslumann og kjörforeldra, skipuleggja námskeið til undirbúnings ættleiðingar, veita ráðgjöf eftir ættleiðingu og senda eftirfylgniskýrslur til upprunalands um stöðu barns eftir komu þess til landsins.

Á myndinni eru frá vinstri Kristinn Ingvarsson, framkvæmdastjóri Íslenskrar ættleiðingar, Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri og Hörður Svavarsson formaður.

Á myndinni eru frá vinstri Kristinn Ingvarsson, Ragnhildur Hjaltadóttir og Hörður Svavarsson.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum