Hoppa yfir valmynd

Frétt

17. desember 2013 Forsætisráðuneytið

Ný skrifstofa menningararfs í forsætisráðuneytinu

Margrét Hallgrímsdóttir
Margrét Hallgrímsdóttir, þjóðminjavörður, verður skrifstofustjóri á nýrri skrifstofu í forsætisráðuneytinu.

Á vegum forsætisráðuneytisins hefur að undanförnu verið unnið að skipulagsbreytingum vegna flutnings verkefna frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Það eru verkefni er varða vernd menningararfs Íslands. Sett verður á fót ný skrifstofa menningararfs til þess að vinna að þessum nýju verkefnum í ráðuneytinu og ákveðið hefur verið að Margrét Hallgrímsdóttir, þjóðminjavörður, verði á grundvelli 36. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins flutt í  embætti skrifstofustjóra á hinni nýju skrifstofu til eins árs frá 1. febrúar 2014.  Margrét verður í leyfi frá Þjóðminjasafni Íslands á sama tíma. 

Undir nýja skrifstofu menningararfs falla m.a. verkefni er lúta að vernd menningararfsins,  þjóðarverðmæta, húsa og mannvirkja og menningartengdrar byggðar. 

Í fjarveru Margrétar verða Anna Guðný Ásgeirsdóttir og dr. Anna Lísa Rúnarsdóttir settar til að gegna embætti Þjóðminjavarðar.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum