Hoppa yfir valmynd

Frétt

2. janúar 2014 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Bætur almannatryggingakerfisins hækka um 3,6%

Velferðarráðuneytið
Velferðarráðuneytið

Bætur þeirra sem fá greiðslur úr almannatryggingakerfinu hækkuðu um 3,6% þann 1. janúar. Hækkun sem þessu nemur tekur til allra bóta lífeyristrygginga, slysatrygginga og félagslegrar aðstoðar.

Sama hækkun varð einnig á meðlagsgreiðslum, greiðslum til lifandi líffæragjafa og til foreldra langveikra og alvarlega fatlaðra barna. Tekjuviðmið framfærsluuppbótar og frítekjumarks fólks sem býr á dvalar- og hjúkrunarheimilum hækkaði einnig um 3,6%.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum