Hoppa yfir valmynd

Frétt

9. janúar 2014 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Vilt þú gerast persónulegur talsmaður fatlaðs einstaklings?

Á ferðinni
Á ferðinni

Vilt þú gerast persónulegur talsmaður fatlaðs einstaklings?

Einstaklingur, sem vegna fötlunar á erfitt með að gæta hagsmuna sinna, á rétt á að velja persónulegan talsmann sér til aðstoðar skv. 7. grein laga um réttindagæslu fyrir fatlað fólk frá 2011. Meðal skilyrða sem þarf að uppfylla til þess að gerast persónulegur talsmaður er að sækja fræðslu um innihald og áherslur í starfinu. Um launalaust starf er að ræða en tilfallandi kostnaður er greiddur.

Námskeið fyrir áhugasama

Þeir sem hafa áhuga á að gerast persónulegir talsmenn eru beðnir um að hafa samband við réttindagæslumann fatlaðs fólks á sínu svæði fyrir 24. janúar nk. og munu í framhaldinu fá upplýsingar um námskeið vegna fyrrgreindrar fræðslu.

Réttindagæslumaður mun veita frekari upplýsingar um hlutverk persónulegs talsmanns sé þess óskað, en nálgast má lög um réttindagæslu fyrir fatlað fólk sem og reglugerð um persónulega talsmenn á vefsvæði velferðarráðuneytisins um réttindagæslu fatlaðs fólks: www.vel.is/rettindagaesla

Upplýsingar um réttindagæslumenn fatlaðs fólks eftir landssvæðum: 

Reykjavík og Seltjarnarnes

Magnús Þorgrímsson
Sími: 858 1550
Netfang: [email protected]
 

Kristjana Sigmundsdóttir
Sími: 858 1627
Netfang: [email protected]
  

Kópavogur, Garðabær, Álftanes, Mosfellsbær og Kjós
Jarþrúður Þórhallsdóttir
Sími: 858 1753                                                                                                                                     
Netfang: [email protected]

Hafnarfjörður og Suðurnes
Rósa Hrönn Árnadóttir
Sími: 858 1798
Netfang: [email protected]
  

Vesturland og Vestfirðir
Jón Þorsteinn Sigurðsson
Sími: 858 1939
Netfang: [email protected]
 

Norðurland
Guðrún Pálmadóttir
Sími 858 1959    
Netfang:
[email protected]
 

Austurland
Sigurlaug Gísladóttir
Sími 858 1964
Netfang: [email protected]
 

Suðurland
Sigrún Jensey Sigurðardóttir
Sími  858 2142
Netfang:
[email protected]                                                                                                                

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum