Hoppa yfir valmynd

Frétt

10. janúar 2014 Forsætisráðuneytið

Nauðsynlegt að rjúfa vítahring verðbólgunnar

Í kjarasamningum á almennum vinnumarkaði, sem undirritaðir voru í desember sl., var lögð áhersla á að skapa forsendur fyrir auknum kaupmætti launatekna á grunni aðferðafræði sem sannað hefur gildi sitt á öðrum Norðurlöndum á undanförnum áratugum. Hin þráláta verðbólga sem ríkt hefur á Íslandi minnkar samkeppni, hækkar vexti, slævir verðskyn og heldur niðri lífskjörum. 

Með nýjum kjarasamningi vildu samningsaðilar ná víðtækri samstöðu um að rjúfa þennan vítahring. Ríkisstjórnin studdi þessa viðleitni samningsaðila með yfirlýsingum frá 15. nóvember og 21. desember sl. Kannanir í aðdraganda kjarasamninga sýndu að mikill meirihluti Íslendinga var hlynntur því að gerð yrði þjóðarsátt á vinnumarkaði þar sem lögð yrði meiri áhersla á stöðugt verðlag og stöðugt gengi, en í stað þess minni áhersla á launahækkanir.

 Í upphafi ársins hafa borist fréttir af nokkrum hækkunum á verði vöru og þjónustu sem gætu stefnt forsendum kjarasamninga í voða. Ríkisstjórnin hvetur fyrirtæki til að styðja við verðlagsforsendur nýgerðra kjarasamninga. 

Á ríkisstjórnarfundi í dag gerði fjármálaráðherra grein fyrir því að í kjölfar samþykktar kjarasamninga muni frumvarp verða lagt fram sem feli í sér efndir á gefnu heiti um lækkun gjalda ríkissjóðs. Verður þetta gert með lækkun á eldsneytisgjöldum og eftir atvikum öðrum gjöldum. Þá hefur fjármálaráðherra beint því til ráðherra í ríkisstjórn að þeir hafi eftirlit með því að stofnanir sem undir þá heyra, eða aðrir aðilar sem veita þjónustu sem áhrif hefur á vísitölu neysluverðs, skuli gæta ítrasta aðhalds og styðja við verðlagsforsendur kjarasamninga. 

Í dag hittu forsætisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra Alþýðusamband Íslands, Bandalag háskólamanna, Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, Bændasamtök Íslands, Kennarasamband Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga og Samtök atvinnulífsins. Samstaða ríkti á fundinum um mikilvægi þess að ná niður verðbólgu til hagsbóta fyrir launafólk. 

Á fundinum var samþykkt að grípa til eftirfarandi aðgerða til að stuðla að því að forsendur kjarasamninga um verðstöðugleika náist:

  • Komið verður á fót átaki til að kynna nauðsyn verðstöðugleika. 
  • Því verður beint til nýrrar fastanefndar um samskipti samtaka aðila á vinnumarkaði, sveitarfélaga og ríkisins að skipuleggja samhæfðar aðgerðir til að fylgjast með og hafa áhrif á verðlagsbreytingar.
  • Fastanefndin skal jafnframt skoða leiðir til að sporna gegn sjálfvirkri vísitöluhækkun ýmissa samninga á markaði, svo sem þjónustusamninga fyrirtækja, leigusamninga og verksamninga. 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum