Hoppa yfir valmynd

Frétt

16. janúar 2014 Utanríkisráðuneytið

Yfir 2/3 telja starfsemi utanríkisþjónustunnar nauðsynlega

Hans G. Andersen og Helgi Gíslason á fundi hjá SÞ

Íslendingar telja starfsemi utanríkisþjónustunnar nauðsynlega og telja að aðstoð við Íslendinga erlendis, gerð fríverslunarsamninga, evrópusamstarf, menningarkynning og norðurslóðasamstarf eigi að vera megináherslur í starfi hennar. Þetta er á meðal niðurstaðna könnunar sem utanríkisráðuneytið hefur látið gera um viðhorf og þekkingu á starfsemi þess. 


Í könnuninni kemur fram að rétt um 60% telja sig vita lítið um utanríkisþjónustuna. Um helmingur svarenda nefnir sendiráð og um 30% alþjóðasamskipti þegar spurt er hvað komi fyrst upp í hugann þegar rætt er um utanríkisþjónustuna. Fylgni er á milli þeirra þátta sem svarendur telja megináherslur starfseminnar og eigi að vera megináherslur.  Rétt um 70% telja utanríkisþjónustuna nauðsynlega og um 37% treysta henni vel til að gæta hagsmuna Íslendinga erlendis. Hún þykir hins vegar ekkert sérlega opin og gagnsæ, aðeins um 8%, eða nútímaleg 12%. 

Þetta er fyrsta sinn sem gerð er könnun á viðhorfi almennings til utanríkisþjónustunnar. Könnunin var gerð á vegum MMR í desember og var svarfjöldi rétt tæplega 1000 einstaklingar.

Könnunin í heild sinni


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum