Hoppa yfir valmynd

Frétt

11. febrúar 2014 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Óskað eftir verkefnum frá varðliðum umhverfisins

Varðliðar umhverfisins.

Óskað er eftir verkefnum til þátttöku í hinni árlegu verkefnasamkeppni, Varðliðum umhverfisins. Þetta er í 8. sinn sem samkeppnin er haldin meðal grunnskólabarna í 5. til 10. bekk. Markmið keppninnar er að hvetja ungt fólk til góðra verka í umhverfisvernd, vekja athygli á sýn ungs fólks á umhverfismál og kalla eftir leiðsögn yngri kynslóðarinnar á því sviði. 

Að verkefnasamkeppninni standa umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Landvernd og Náttúruskóli Reykjavíkur.

Skilafrestur verkefna er til 1. apríl 2014 og þau skal senda umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík, merkt ,,Varðliðar umhverfisins”. Dómnefnd skipuð fulltrúum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, Landverndar og Náttúruskóla Reykjavíkur velur úr innsendum verkefnum og tilnefnir Varðliða umhverfisins.

Verkefnin mega vera af fjölbreyttum toga, t.d. ritgerðir, ljósmyndir, ljóð, veggspjöld, bæklingar, myndbönd og hljóðverk. Í stuttu máli er frjálst að skila inn verkefnum í hvaða formi sem er svo lengi sem þau eru sannarlega unnin af nemendunum sjálfum og umfjöllunarefni þeirra eru umhverfismál í víðum skilningi þess orðs.

Samkeppnin er kjörið tækifæri fyrir nemendur og kennara að koma á framfæri verkefnum sem þeir fyrrnefndu hafa þegar unnið í skólanum því ekki er skilyrði að verkefnin séu sérstaklega unnin fyrir samkeppnina.

Umhverfis- og auðlindaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, útnefnir Varðliða umhverfisins við hátíðlega athöfn í tengslum við Dag umhverfisins, 25. apríl en auk þess fá varðliðarnir glaðning í formi upplifunar af einhverju tagi í samráði við skóla þeirra. Allir þátttakendur í verkefninu fá viðurkenningarskjal.

Í fyrra voru nemendur þriggja skóla útnefndir Varðliðar umhverfisins; nemendur í 5. og 6. bekk Kerhólsskóla í Grímsnes- og Grafningshreppi hlutu viðurkenningu fyrir verkefnið Breytum rétt - mengum minna; nemendur í 7. bekk Melaskóla í Reykjavík fyrir leikrit um umhverfismál og Narfi Hjartarson, nemandi í 10. bekk í Patrekskóla – Grunnskóla Vesturbyggðar, fyrir Facebooksíðuna Fegrunarátak Patreksfjarðar þar sem hann fjallar um ýmislegt tengt umhverfismálum og ræktun.

Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um keppnina hér á heimasíðu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum