Hoppa yfir valmynd

Frétt

7. mars 2014 Forsætisráðuneytið

Norrænt jafnrétti í brennidepli á Kvennaráðstefnunni í New York

Norrænu jafnréttisráðherrarnir. Mynd/Heidi Orava - norden.org
Norrænu jafnréttisráðherrarnir. Mynd/Heidi Orava - norden.org

Norrænir jafnréttisráðherrar standa fyrir ýmsum viðburðum á Kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (SÞ)í New York sem hefst 10. mars, til að vekja athygli á árangri 40 ára samstarfs þjóðanna á sviði jafnréttismála og ræða verkefnin framundan. Eygló Harðardóttir fer fyrir norrænu ráðherrunum en hún er formaður Norrænu ráðherranefndarinnar um jafnréttismál á þessu ári.

Árangur og áskoranir sem varða framkvæmd þúsaldarmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um aukið jafnrétti og bætta stöðu kvenna verður megin umræðuefni Kvennaráðstefnunnar í ár. Eygló Harðardóttir, samstarfsráðherra Norðurlandanna, segir að fyrir tilstilli alþjóðasamfélagsins hafi tekist að draga úr barnadauða, aftur á móti hafi orðið bakslag í baráttunni fyrir rétti kvenna til að ráða yfir eigin líkama: „Þetta er mál sem Norðurlandaþjóðirnar hafa beitt sér fyrir á vettvangi SÞ og við munum ekki láta deigan síga“ segir Eygló.

Þann 12. mars standa norrænu ráðherrarnir fyrir pallborðsumræðum um menntun sem leið til að stuðla að jafnrétti og styrkja stöðu kvenna (Promoting Gender Equality and Empowering Women and Girls Through Education), þar sem þeir segja frá því hvernig stjórnvöld beita stefnumótandi ákvörðunum  og beinum aðgerðum til að hvetja stúlkur og konur til náms og starfa í raun- og tæknigreinum og til að fjölga konum í stjórnunarstöðum.

Norræna ráðherranefndin efnir einnig til málþings með sérfræðingum á sviði jafnréttismála 13. mars þar sem rætt verður um þær áskoranir og hindranir á vegi jafnréttis í menntakerfinu og á vinnumarkaði sem Norðurlandaþjóðirnar eru enn að kljást við. Staðalímyndir hafa enn sem fyrr áhrif á námsval ungs fólks á öllum menntastigum og virðast hafa mikil áhrif jafnt á stúlkur og drengi. Þessi staðreynd verður umfjöllunarefni málþingsins og jafnframt hvaða leiðir séu færar til að breyta þessu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum