Hoppa yfir valmynd

Frétt

7. mars 2014 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Óskað eftir tilnefningum til Kuðungsins 2013

Merki Kuðungsins

Úthlutunarnefnd á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnun, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, er þess verðug að hljóta umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn fyrir árið 2013.

Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunni. Fyrirtæki og stofnanir geta hvort heldur tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum.

Kuðungurinn er viðurkenning á framlagi fyrirtækja og stofnana til umhverfismála sem veitt er árlega. Umhverfisráðuneytið veitti Kuðunginn fyrst árið 1995, þá fyrir starf á árinu 1994. Þau fyrirtæki sem hafa hlotið viðurkenninguna hingað til eru:

Í úthlutunarnefnd Kuðungsins 2013 sitja Ásborg Arnþórsdóttir formaður, skipuð af umhverfis- og auðlindaráðherra, Gerður Magnúsdóttir fyrir hönd félagasamtaka á sviði umhverfismála,  Kristján Þórður Snæbjarnarson fyrir hönd Alþýðusambands Íslands og Lárus Ólafsson fyrir hönd Samtaka atvinnulífsins.

Tillögur skulu berast umhverfis- og auðlindaráðuneytinu eigi síðar en sunnudaginn 30. mars n.k. merktar ,,Kuðungurinn” á póstfangið [email protected] eða með pósti í umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík.

Nánari upplýsingar.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum