Hoppa yfir valmynd

Frétt

18. mars 2014 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Úthlutun á styrkjum úr Veiðikortasjóði 2014

Hreindýr.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur ákveðið úthlutun úr Veiðikortasjóði fyrir árið 2014. Í kjölfar auglýsingar um umsóknir um styrki úr Veiðikortasjóði til rannsókna á stofnum villtra fugla og villtra spendýra bárust umhverfis- og auðlindaráðuneytinu fimmtán umsóknir að fjárhæð um 60 milljónir króna. Til úthlutunar voru um 30 milljónir króna.

Ráðuneytið sendi umsóknir um styrki til umsagnar Umhverfisstofnunar í samræmi við ákvæði laga um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Umhverfisstofnun fékk álit ráðgjafarnefndar um úthlutanir í samræmi við úthlutunarreglur fyrir Veiðikortasjóð.

Ráðuneytið hefur að fenginni umsögn Umhverfisstofnunar og áliti ráðgjafarnefndarinnar um umsóknirnar ákveðið að veita eftirfarandi aðilum styrki úr 

  • Háskóli Íslands, krónur 3.890.000 vegna verkefnisins: Stofnþróun íslenskra bjargfugla.
  • Náttúrustofa Suðurlands, Vestmannaeyjum, krónur 3.620.000 vegna verkefnisins: Lundarannsóknir 2014. Vöktun viðkomu, fæðu, líftala og könnun vetrarstöðva.       
  • Náttúrufræðistofnun Íslands, krónur 8.500.000 vegna verkefnisins: Vöktun rjúpnastofnsins og afrán fálka á rjúpu.              
  • Náttúrustofa Norðausturlands,  Náttúrustofa Vestfjarða og  Náttúrustofa Suðurlands, krónur 3.460.000 vegna verkefnisins: Farhættir og vetrarstöðvar íslenskra svartfugla.
  • Náttúrustofa Suðausturlands, krónur 2.000.000 vegna verkefnisins: Uppskerutap vegna ágangs gæsa í ræktarlönd / Beitarálag á Suðausturlandi.
  • Náttúrustofa Suðvesturlands , Rannsóknarsetur HÍ Suðurnesjum og US Geological Survey, krónur 2.000.000 vegna verkefnisins: Heilbrigði veiðitegunda, gæs, endur, svartbakur, svartfugl.
  • Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum  og Náttúrufræðistofnun Íslands, krónur 2.500.000 vegna verkefnisins: Sníkjudýr rjúpunnar 2013 og 2014 - tegundir og fjöldi á 8. og 9. ári langtímarannsóknar.
  • VERKÍS, krónur 800.000 vegna verkefnisins: Vöktun á ungahlutfalli í veiðistofnum gæsa og anda, með aldursgreiningu vængja úr veiði og vöktun á ungahlutfalli í friðuðum stofni blesgæsa.
  • Ævar Pedersen, krónur 700.000 vegna verkefnisins: Íslensk fuglabjörg og hlunnindi þeirra. 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum