Hoppa yfir valmynd

Frétt

1. apríl 2014 Innviðaráðuneytið

Ríkisstjórnin leggur fyrir Alþingi frumvarp um frestun verkfallsaðgerða á Herjólfi

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag að leggja fyrir Alþingi lagafrumvarp um að fresta til 15. september verkfallsaðgerðum sem Sjómannasambands Íslands hóf á Herjólfi 5. mars. Með verkfallsaðgerðum er átt við vinnustöðvanir, verkbönn, verkföll og aðrar aðgerðir sem ætlað er að knýja fram aðra skipan kjaramála en lög þessi ákveða. Frumvarpið verður nú sent þingflokkum ríkisstjórnarflokkanna til afgreiðslu og ráðgert er að leggja það fram á Alþingi í dag og óska þess að unnt verði að afgreiða það samdægurs.

Í frumvarpinu er verkfallsaðgerðum frestað og aðilum falið að nýta þann tíma til að ná samkomulagi á farsælan hátt en ekki farin sú leið að senda kjaradeiluna í gerðardóm. Það er sameiginlegt fyrri inngripum Alþingis í kjaradeilur að með þeim hefur þurft að forða efnahagslegu tjóni eða að lögmæltum verkefnum hins opinbera verið stefnt í hættu.

Stjórnvöld standa frammi fyrir þeim erfiða kosti að grípa inní kjaramál deiluaðila og sú ákvörðun er hinsvegar ekki léttvæg. Þá er það mat deiluaðila að ekki séu forsendur fyrir samningum eins og málin standa nú og lausn er ekki í sjónmáli. Það verður því ekki undan vikist að Alþingi bregðist við.

Sérstaða Vestmannaeyja í samgöngumálum er augljós og ótvíræð en Herjólfur tengir saman almenningssamgöngukerfi lands og Eyja. Vöruflutningar fara að mestu sjóleiðina milli lands og Eyja og hefur verkfallið því mjög neikvæð áhrif á atvinnulíf í Eyjum að ógleymdum áhrifum á íbúa sem reiða sig á Herjólf til að sækja nauðsynlega þjónustu til lands.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum