Hoppa yfir valmynd

Frétt

4. apríl 2014 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Grein umhverfis- og auðlindaráðherar í Fréttablaðinu - Bregðumst við loftslagsvánni

Eftirfarandi grein Sigurðar Inga Jóhannssonar umhverfis- og auðlindaráðherra birtist í Fréttablaðinu 4. apríl 2014.


Bregðumst við loftslagsvánni

Vísindanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (IPCC) birtir nú í áföngum 5. úttekt sína á loftslagsbreytingum og áhrifum þeirra. Kaflar um líkleg áhrif loftslagsbreytinga hafa vakið mikla athygli að undanförnu. Það er ekki nýtt að IPCC dragi upp dökka mynd, en vísindin styrkjast með hverri úttekt og vægi niðurstöðunnar vex.

Ekki síst valda áhyggjum spár um fæðuöryggi. Til lengri tíma getur hlýnun lofthjúpsins leitt til minni uppskeru nytjajurta á borð við hveiti, maís og hrísgrjón. Áhrif á fiskistofna eru einnig illfyrirsjáanleg, þar sem þeir færa sig eftir breyttu hitastigi og straumum. Þetta er slæm tíðindi á sama tíma og mannkyn vex um tvo milljarða munna eða meira á næstu áratugum.

Allar þjóðir munu bera skaða af stórfelldum loftslagsbreytingum, líka við Íslendingar. Fyrir okkur er hin svokallaða súrnun sjávar eitt helsta beina áhyggjuefnið tengt loftslagsbreytingum. Aukinn styrkur CO2 breytir efnasamsetningu í sjó, sem getur haft alvarleg áhrif á vistkerfi hafsins. Röskun á náttúrufari og lífsskilyrðum á heimsvísu hefur einnig óbein áhrif á Ísland, vegna aukinnar hættu á upplausn, ófriði og flóttamannavanda.

Til skemmri tíma geta einstakir þættir orðið Íslendingum og öðrum norðlægum ríkjum hagfelldir. Þannig telja vísindamenn líklegt að hlýnun muni bæta ræktunarskilyrði á Íslandi. Þetta er staðreynd, sem breytir engu um að loftslagsvandinn er hnattræn vá, sem Ísland berst gegn ásamt öðrum. Það er líka rétt að benda á að í öllum vanda felst von um lausn. Hún felst að miklu leyti í loftslagsvænni tækni, sem dregur úr losun og bætir lífsgæði. Mörg íslensk fyrirtæki skara fram úr í slíkri tækni og á sviði endurnýjanlegrar orku. Ég fagna því ef nýsköpun á þessu sviði blómstrar og fyrirtækjum með loftslagslausnir gengur vel.

Skýrsla IPCC er ákall til ríkja heims að gera betur. Ísland stendur sig að mörgu leyti vel í loftslagsmálum. Auðvitað getum við þó gert enn betur. Það má efla hlut rafbíla. Það má nýta loftslagsvænar tæknilausnir íslenskra hugvitsfyrirtækja í skipum. Það má efla kolefnisbindingu með skógrækt og landgræðslu. Tökum loftslagsspánum af alvöru og vinnum að lausnum með bjartsýni að vopni. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum