Hoppa yfir valmynd

Frétt

23. apríl 2014 Forsætisráðuneytið

Jafnt hlutfall kynja í nefndum þriðja árið í röð

Velferðarráðuneytið
Velferðarráðuneytið

Hlutfall karla og kvenna í nefndum og ráðum á vegum velferðarráðuneytisins var nánast jafnt árið 2013, þriðja árið í röð. Ráðuneyti skulu birta upplýsingar um hlut kynja í nefndum og ráðum samkvæmtþingsályktun um áætlun í jafnréttismálum til fjögurra ára sem samþykkt var á Alþingi 19. maí 2011 og eru upplýsingar velferðarráðuneytisins birtar hér.

Samkvæmt 15. gr. laga nr. 10/2008, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, skal við skipun í nefndir, ráð og stjórnir á vegum ríkis og sveitarfélaga gæta þess að hlutfall kynjanna sé sem jafnast og að hlutur hvors kyns sé ekki minni en 40% þegar fulltrúar eru fleiri en þrír.

Í efri töflunni hér að neðan má sjá hlutföll karla og kvenna í öllum starfandi nefndum, ráðum og stjórnum á vegum ráðuneytisins og hvernig skiptingin var síðastliðin þrjú ár. Hlutföllin eru nær alveg jöfn og litlar breytingar hafa orðið milli ára.

Í neðri töflunni sjást kynjahlutföllin í þeim nefndum sem skipaðar hafa verið ár hvert. Þar kemur fram að hlutur kvenna fer heldur vaxandi í nýjum nefndum sem skipaðar voru árið 2013. Konur voru þá 53,2% skipaðra fulltrúa en karlar 46,8%.

 

Samtals fjöldi fulltrúa

Ár Konur Karlar Heild  Hlutfall kvenna Hlutfall karla
2011 405 379 784 51,7% 48,3%
2012 419 391 810 51,7% 48,3%
2013 421 401 822 51,2% 48,8%






Samtals fjöldi í nýjum nefndum

Ár Konur Karlar Heild  Hlutfall kvenna Hlutfall karla
2011 137 136 273 50,2% 49,8%
2012 104 97 201 51,7% 48,3%
2013 141 124 265 53,2% 46,8%

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum