Hoppa yfir valmynd

Frétt

12. maí 2014 Heilbrigðisráðuneytið

Gerð krabbameinsáætlunar komin vel á veg

Rannsókn á heilbrigðissviði
Rannsókn á heilbrigðissviði

Fjallað verður um faraldsfræði krabbameina, skráningu þeirra, forvarnir og heilsugæslu, rannsóknir og gæðastjórnun, meðferðarþætti og mannafla, eftirmeðferð og líknandi meðferð í nýrri krabbameinsáætlun sem unnið er að á vegum heilbrigðisráðherra. Ráðherra reiknar með að áætlunin verði lögð fram undir lok þessa árs.

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra ræddi meðal annars um gerð krabbameinsáætlunarinnar á afmælisráðstefnu Krabbameinsfélags Íslands síðastliðinn föstudag. Þar var haldið upp á tvenn tímamót; 50 ára starfsafmæli Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins og 60 ára afmæli Krabbameinsskrárinnar: „Þetta umfangsmikla verkefni er nú óðum að taka á sig mynd og ég bind vonir við að hægt verði að leggja fram Krabbameinsáætlun undir lok þessa árs. Gert er ráð fyrir að setja fram markmiðsmælda og tímasetta aðgerðaáætlun til þriggja eða fimm ára. Verkefninu hefur verið skipt upp í fimm afmarkaða verkþætti sem unnið hefur verið að í jafnmörgum vinnuhópum. Þetta eru vinnuhópar um faraldsfræði og skráningu, forvarnir og heilsugæslu, rannsóknir og gæðastjórnun, meðferðarþætti og mannafla og loks hópur um eftirmeðferðarþætti og líknandi meðferð. Þvert á þessa hópa starfa tveir rýnihópar sem í eiga sæti fulltrúar fullorðinna sem greinst hafa með krabbamein og fulltrúar krabbameinsgreindra barna og aðstandenda þeirra.“

Að þekkja óvin sinn

Ráðherra sagði í ávarpinu merkilegt til þess að hugsa að heil 60 ár séu liðin frá upphafi krabbameinsskráningar á Íslandi. Hann rifjaði upp greinaskrif Níels Dungal um nauðsyn skráningar krabbameina árið 1949 en Níels var helsti hvatamaður að stofnun Krabbameinsskrárinnar: „Níels skrifaði grein um nauðsyn þess að hefja skipulega skráningu krabbameina í Fréttabréfi um heilbrigðismál árið 1949 og skrifaði þar orð sem vöktu eftirtekt, eða eitthvað á þá leið að til þess að vinna sigur á óvini sínum þurfi maður að þekkja hann. Níels var framsýnn, því ekki aðeins lagði hann áherslu á að fá ljósa mynd af ástandinu í þessum efnum á sínum tíma, heldur dró hann skýrt fram mikilvægi þess að gera samanburð mögulegan síðar meir. Því væri nákvæm skrá yfir alla krabbameinssjúklinga mikilvægur grundvöllur að starfsemi Krabbameinsfélagsins.“

Ráðherra sagði að þótt við hefðum ekki sigrast á krabbameinum byggjum við nú að viðamikilli þekkingu og og upplýsingum sem byggst hafa upp í gegnum árin og áratugina – meðal annars með markvissri skráningu krabbameina og upplýsinga um þau: „Þessi þekking hefur skipt sköpum í baráttunni, líkt og Níels Dungal batt vonir við, og hún mun nýtast okkur áfram. Ég bind vonir við að Krabbameinsáætlunin muni einnig vega þungt í þessu efni og stuðla að enn betri árangri á komandi árum.“

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum