Hoppa yfir valmynd

Frétt

18. maí 2014 Dómsmálaráðuneytið

Breytingar á útlendingalögum

Alþingi samþykkti breytingar á lögum um útlendinga á síðasta starfsdegi sínum fyrir hlé. Meðal breytinga er að almenn kæruleið vegna ákvarðana um útlendingamál verður færð til óháðrar úrskurðarnefndar sem hefur sömu valdheimildir og ráðherra til að úrskurða í kærumálum. Þá voru innleiddar fleiri breytingar sem munu gera stjórnsýsluna skilvirkari, tryggja enn frekar mannréttindi hælisleitenda og stytta málsmeðferðartíma en átak þess efnis hefur staðið yfir í ráðuneytinu frá því í ágúst 2013.

Markmiðið með skipan kærunefndar er meðal annars að mæta gagnrýni á það fyrirkomulag sem ríkt hefur að innanríkisráðuneytið endurskoði ákvarðanir Útlendingastofnunar þar sem ráðuneytið geti ekki talist óháður og óhlutdrægur aðili. Hefur sú gagnrýni bæði komið frá innlendum og erlendum fagaðilum. Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra tók undir þá gagnrýni þegar hún lagði frumvarpið fram á Alþingi og sagði þá jafnframt að mikilvægt væri að mannréttindasamtök ættu aðild að nefndinni.

Um skipan kærunefndarinnar segir meðal annars svo í lögunum:

  • Ráðherra skipar kærunefnd útlendingamála til fimm ára í senn.
  • Nefndin skal skipuð þremur mönnum og jafnmörgum til vara. Nefndarmenn skulu vera sérfróðir um mál er lög þessi ná til.
  • Formaður nefndarinnar skal hafa starfið að aðalstarfi. Hann skal uppfylla starfsgengisskilyrði héraðsdómara.

Hinir tveir nefndarmennirnir eru skipaðir til fimm ára í senn. Annar skal tilnefndur af Mannréttindaskrifstofu Íslands og hafa sérþekkingu á sviði útlendingamála, einkum hvað varðar dvöl og búsetu útlendinga hér á landi. Hinn skal tilnefndur af Mannréttindastofnun Háskóla Íslands og hafa sérþekkingu á sviði útlendingamála, einkum hvað varðar málefni flóttamanna og rétt til alþjóðlegrar verndar.

Hanna Birna sagði meðal annars í framsöguræðu sinni á Alþingi að eitt megin markmiðið með breytingunum væri að stytta þann tíma sem hælisleitendur þurfa að bíða eftir niðurstöðu í máli sínu hér á landi en einnig að lækka kostnað ríkisins við umönnun hælisleitenda sem hlýst af svo löngum biðtíma. Í ráðuneytinu hafi að undanförnu staðið yfir átak til úrbóta í málaflokknum. Frekari tillögur þar að lútandi verða kynntar nánar á næstu vikum auk þeirra breytinga sem lagabreytingin hefur í för með sér.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum