Hoppa yfir valmynd

Frétt

23. maí 2014 Innviðaráðuneytið

Undirbúningur hefst að hönnun og lagningu Sundabrautar

Ríkisstjórnin samþykkti á afmælisfundi sínum í dag tillögu Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra um að hefja formlegar viðræður ríkisins og einkaaðila um undirbúning, hönnun og lagningu Sundabrautar í Reykjavík í því skyni að flýta mögulegum framkvæmdum. Yrði byggt á tillögum stýrihóps ráðherra sem hefur haft það hlutverk að fara yfir hvaða samgönguframkvæmdir koma til greina í samvinnu ríkis og einkaaðila.

Fjögurra ára samgönguáætlun liggur nú fyrir Alþingi og verður tekin til umfjöllunar þegar þing kemur saman að nýju í haust. Þar er meðal annars fjallað um fyrirhugaða Sundabraut og að kostir einkaframkvæmdar verði skoðaðir. Í greinargerð með frumvarpi til fjárlaga segir einnig að umtalsvert fé þurfi til að viðhalda og byggja upp samgöngukerfi landsins á næstu árum og því talið rétt að huga að aðkomu einkaaðila í samstarfi við opinbera aðila. Í því sambandi verði litið til góðrar reynslu margra nágrannaþjóða af slíku samstarfi fjárfesta, rekstraraðila og ríkisvalds.

Um miðjan apríl skipaði ráðherra stýrihóp sem hefur það hlutverk að fara yfir hvaða samgönguframkvæmdir koma til greina í samvinnu ríkis og einkaaðila. Ljóst er að leita þarf leiða til að fjármagna ýmis og brýn samgönguverkefni með öðru móti en beinum framlögum úr ríkissjóði. Um leið og minna fé hefur á síðustu árum verið veitt í stofnframkvæmdir í vegakerfinu fer þörfin sífellt vaxandi og því var ákveðið að kanna rækilega hvaða framkvæmdir unnt væri að ráðast í með samvinnu ríkis og einkaaðila, allt frá undirbúningi og hönnun og að rekstri og þjónustu við slík mannvirki.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum