Hoppa yfir valmynd

Frétt

26. maí 2014 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Grein umhverfis- og auðlindaráðherra í Fréttablaðinu - Uppbygging og verndun

Eftirfarandi grein Sigurðar Inga Jóhannssonar umhverfis- og auðlindaráðherra birtist í Fréttablaðinu 26. maí 2014.


Uppbygging og verndun

Ráðast á í mikla uppbyggingu og verndaraðgerðir á ferðamannastöðum strax í sumar, en ríkisstjórnin samþykkti í síðustu viku að veita ríflega 350 milljónum króna framlagi til brýnna verkefna til verndunar á náttúru landsins og öryggissjónarmiða. Um er að ræða um 90 mismunandi framkvæmdir á gönguleiðum/göngustígum til að vernda okkar helstu náttúruperlur sem eru undir álagi vegna aukins ferðamannastraums. Þessar nauðsynlegu aðgerðir munu skapa fjöldamörg störf um allt land, en meðal annars er um að ræða svæði sem eru á rauðum lista Umhverfisstofnunar. Aðgerðirnar ná til friðlýstra svæða, þjóðgarða og svæða á náttúruminjaskrá, auk annara svæða sem eru vinsæl og undir álagi af ferðamennsku. Fjármunirnir skiptast á milli Þingvallaþjóðgarðs, Vatnajökulsþjóðgarðs, Umhverfisstofnunar, Landgræðslu ríkisins, Skógræktar ríkisins og sveitarfélaga vítt og breitt um landið. Fjölmargir einkaaðilar og samtök munu koma að þessum framkvæmdum sem dreifast víða um landið. Meðal annars er um að ræða endurnýjun á útsýnispalli við Gullfoss, göngu- og útsýnispall við Dettifoss, viðhald á gönguleiðum í Þórsmörk, endurbætur á gönguleiðum í Skaftafelli, við Látrabjarg, Goðafoss, Glym og Hengifoss og svo má lengi telja. Bæta þarf öryggi gesta eins og kostur er með góðum stígum og öryggisgirðingum um leið og verndargildi svæðanna eru uppfyllt.

Aðstæður hafa gjörbreyst hér á landi  á skömmum tíma og hefur ekki síst orðið mikil fjölgun ferðamanna yfir vetrartímann sem nauðsynlegt er að bregðast við áður en í óefni er komið. Greinin hefur vaxið hratt og skapar miklar gjaldeyristekjur, væntanlega mest allra atvinnugreina á síðasta ári. Stuðlað hefur verið að vexti og framgangi ferðaþjónustunnar sem hefur skilað sér í auknum tekjum til þeirra sem selja ferðamönnum vörur og þjónustu.

Það felst mikil áskorun í því að taka á móti auknum fjölda ferðamanna og er náttúra landsins helsta aðdráttaraflið. Fyrr í vetur kynnti ég í ríkisstjórn útfærslu á uppbyggingu innviða og vernd náttúru á ferðamannastöðum. Í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu er nú unnið að heildstæðri áætlun sem nær yfir allt landið, en hingað til hefur skort skýra stefnumörkun og yfirlit yfir vandann á ferðamannastöðum. Slík áætlun er mikilvæg forsenda þess að hægt sé að ráðast í verndaraðgerðir og takast á við uppbyggingu innviða með skipulögðum hætti. Útfærslan verður grundvöllur fyrir úthlutun fjármagns sem yrði til við gjaldtöku, en ráðherra ferðamála útfærir leiðir til tekjuöflunar.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum