Hoppa yfir valmynd

Frétt

30. maí 2014 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands - auglýsing nr. 1/2014 - fallin úr gildi

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:


1.Gisting og fæði í einn sólarhring, kr. 31.300

2.Gisting í einn sólarhring, kr. 20.500

3. Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag, kr. 10.800

4. Fæði í hálfan dag, minnst 6 tímaferðalag, kr. 5.400.


Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. júní 2014. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 3/2013 dags. 27. september 2013.

Nefndin fer þess á leit við ráðuneyti og stofnanir að viðmiðunarfjárhæðir um greiðslur dagpeninga um gistingu og veitingar verði kynntir starfsfólki.

Vakin er athygli á því að auglýsing ferðakostnaðarnefndar um dagpeninga er á vefsíðu fjármálaráðuneytisins og er veffangið eftirfarandi: www.fjarmalaraduneyti.is/ferdakostnadur

Reykjavík, 30. maí 2014
Ferðakostnaðarnefnd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum