Hoppa yfir valmynd

Frétt

2. júní 2014 Utanríkisráðuneytið

Skóflustunga að Norðurljósarannsóknarstöð að Kárhóli í Reykjadal

Frá skóflustungunni að Kárhólum

Fyrsta skóflustunga að Norðurljósarannsóknarstöð á Kárhóli í Reykjadal var tekin dag en uppbygging stöðvarinnar er liður í samkomulagi milli Rannsóknarmiðstöðvar Íslands – RANNÍS og Heimskautastofnunar Kína Í Shanghæ (Polar Research Institute of China – PRIC).

Af þessu tilefni segir Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra, alþjóðlegt samstarf íslenskra mennta- og vísindastofnana mikilvægan þátt í stefnu stjórnvalda um þekkingaruppbyggingu og vísindasamstarf í málefnum norðurslóða. Stjórnvöld leggi mikla áherslu á fjölþjóðlegt samstarf ríkja í málefnum svæðisins, einkum á vettvangi Norðurskautsráðsins en einnig tvíhliða samstarf, m.a. við Kína sem hefur eflst eftir að ríkin undirrituðu samning um vísindasamstarf í málefnum norðurslóða vorið 2012.

Íslensk sjálfseignarstofnun, Aurora Observatory, sem stofnuð var á síðasta ári mun annast uppbyggingu og rekstur allrar aðstöðu á Kárhóli en stofnaðilar eru atvinnuþróunarfélag Þingeyinga og Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar, Atvinnuefling Þingeyjarsveitar, Kjarni ehf og Arctic Portal.

Byggð verður rúmlega 700 m2 bygging sem hýsa mun rannsóknartæki og vinnuaðstöðu fyrir vísindamenn auk gestastofu fyrir ferðamenn með sýningarrými og litlum ráðstefnusal til kynningar á norðurljósunum og öðrum háloftafyrirbærum. Rannsóknarstarfsemi hófst haustið 2013 en starfsemi stöðvarinnar útvíkkar frekar þær mælingar sem þegar eru stundaðar hér á landi þar sem fyrirhuguð tæki og búnaður geta gefið ítarlegri upplýsingar um eiginleika norðurljósa en núverandi búnaður.

Ýmsar stofnanir munu geta tekið þátt í rannsóknum stöðvarinnar, m.a. Veðurstofa Íslands, Raunvísindastofnun Háskóla Íslands, Háskólinn á Akureyri, Norðurslóðanet Íslands og Heimskautastofnunin, stofnun um jarðvísindi í Kína (CAS), vísinda- og tækniháskóli Kína auk annarra þarlendra stofnana.

Í framhaldi af skóflustungu að stöðinni hefst tveggja daga málþing á Akureyri, þar sem vísinda- og fræðimenn frá Norðurlöndunum og Kína, auk fulltrúa ríkja Norðurskautsráðsins munu fjalla um málefni Norðurslóða, m.a. alþjóðasamvinnu, efnahagslíf og alþjóðavæðingu.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum