Hoppa yfir valmynd

Frétt

24. júní 2014 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Ísland fær fjórar tilnefningar til Náttúruverndar- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs

nordiskeflagg
Þjóðfánar Norðurlanda.

Þrettán eru tilnefndir til Náttúruverndar- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs í ár og fá samfélög á Íslandi flestar tilnefningarnar eða alls fjórar.  Það eru Sjálfseignarstofnunin Skaftholt í Skeiða- og Gnúpverjahreppi,  Sólheimar í Grímsnesi, Reykjavíkurborg og samstarf sveitarfélaganna Eyja- og Miklaholtshrepps, Helgafellssveitar, Grundarfjarðarbæjar, Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar á Snæfellsnesi. 

Náttúruverndar- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs verða á þessu ári veitt sveitarfélagi, borg eða staðbundnu samfélagi sem hefur í starfsemi sinni lagt mikið af mörkum til umhverfisverndar eða lagt sig sérstaklega fram á einhverju ákveðnu sviði umhverfismála.

Auk Íslendinganna hljóta Danir þrjár tilnefningar, Svíar tvær, Finnar tvær og Grænland og Færeyjar eina hvor.

Almenningi á Norðurlöndum gefst tækifæri til að senda inn tilnefningar til norrænnar dómnefndar sem er skipuð 13 fulltrúum, tveimur frá hverju norrænu ríkjanna og einum frá Grænlandi, Færeyjum og Álandseyjum. Að þessu sinni valdi dómnefndin úr yfir 30 ábendingum sem bárust. 

Tilnefningarnar þrettán eru:

  • Staðbundna samfélagið Gjógv (Færeyjar)
  • Sveitarfélagið Gladsaxe (Danmörk)
  • Sveitarfélagið Hallstahammar (Svíþjóð)
  • Sveitarfélagið Ii / Ijo (Finnland)
  • Borgin Jyväskylä (Finnland)
  • Sveitarfélagið Lejre (Danmörk)
  • Sveitarfélagið Middelfart (Danmörk)
  • Reykjavíkurborg (Ísland)
  • Saligaatsoq-Avatangiiserik-verkefnið (Grænland)
  • Skaftholt í Skeiða- og Gnúpverjahreppi (Ísland)
  • Snæfellsnes, samstarf fimm sveitarfélaga (Ísland)
  • Stofnunin Sólheimar (Ísland)
  • Sveitarfélagið Växjö (Svíþjóð)

Náttúruverndar- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs verða afhent í Stokkhólmi miðvikudaginn 29. október 2014 í tengslum við þing Norðurlandaráðs. Nemur verðlaunaféð 350 þúsund dönskum krónum, eða um 7,3 milljónum íslenskra króna.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum