Hoppa yfir valmynd

Frétt

26. júní 2014 Forsætisráðuneytið

A-535/2014. Úrskurður frá 24. júní 2014

Úrskurður

Hinn 24. júní 2014 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. A-535/2014 í máli ÚNU14020001.

Kæra

Með tölvubréfi, dags. 3. febrúar 2014, kærði A, blaðamaður á Fréttablaðinu, synjun Isavia ohf. um að veita honum aðgang að samningi við Mýflug hf., þ.e. samningi um leigu á flugvél í eigu Isavia ohf. Með kærunni fylgdi afrit af umræddri synjun. Þar segir m.a.:

 „Vísað er til tölvupósts frá þér 23. janúar s.l. þar sem óskað er eftir afriti af samningum um útleigu á flugvél Isavia ohf. til Mýflugs. Eins og í fyrri beiðni þinni frá 7. janúar s.l. kemur ekki fram í beiðninni á hvaða grunni óskað er eftir þessum gögnum. Með hliðsjón af ákvæðum upplýsingalaga veita lögin ekki aðgang að öðrum gögnum í vörslu Isavia en þeim sem orðið hafa til eftir gildistöku laganna 1. janúar 2013 að viðbættum 6 mánuðum skv. ákv. 1. mgr. sbr. 3. mgr. 35. gr. laganna. Hins vegar undanskilja lögin aðgang að gögnum er varða fjárhags- eða viðskiptahagsmuni fyrirtækja sbr. 2. mgr. 9. gr. laganna. Ekki er því hægt að verða við beiðni þinni um aðgang að þessum gögnum.“

Málsmeðferð

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál sendi Isavia ohf. bréf, dags. 7. febrúar 2014, og gaf félaginu kost á athugasemdum við framangreinda kæru. Í svarbréfi félagsins, dags. 13. febrúar 2014, segir m.a.: 

„Isavia ohf. er hlutafélag í eigu ríkisins sem fellur undir 2. mgr. 2. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Eins og fram kom í svarinu til [A] taka lögin ekki gildi gagnvart félaginu fyrr en 6 mánuðum eftir gildistöku laganna sem var 1. janúar 2013, sbr. ákv. 1. mgr. 35. gr. laganna. Þá taka þau ekki til annarra gagna en þeirra sem urðu til eftir gildistöku laganna, sbr. ákv. 1. mgr. 35. gr. laganna. Þá taka þau ekki til annarra gagna en þeirra sem urðu til eftir gildistöku laganna sbr. 3. mgr. 35. gr. 

Félagið er ekki stjórnvald og tekur ekki stjórnvaldsákvarðanir á þessu sviði þannig að undanþáguákvæði síðari málsliðar 3. mgr. 35. gr. á ekki við.

Samningur sem [A] óskar eftir aðgangi að er frá 1. október árið 2009 (sbr. forsíða samningsins) og fellur því ekki undir gögn sem lögin veita aðgang að. Samningurinn var síðan framlengdur sbr. tölvupóstur 19. september 2013, sem er meðfylgjandi. Þegar og af þessari ástæðu var aðgangi að þessum gögnum hafnað.“

Með bréfi, dags. 18. febrúar, óskaði úrskurðarnefnd um upplýsingamál upplýsinga varðandi það hvort gerður hafi verið nýr samningur árið 2013 og tekið var fram að ef svo væri þyrfti henni að berast afrit af honum. Í svari Isavia ohf., sem barst sama dag, kemur fram að ekki hafi verið gerður nýr samningur, heldur hafi samningurinn frá árinu 2009 aðeins verið „framlengdur með tölvupósti“. Þar segir: 

„Samningurinn var aðeins framlengdur með tölvupósti og það staðfest á samráðsfundi sbr. 7. liður fundargerðarinnar. Um er að ræða einfalda tilkynningu um framlengingu til eins árs.“ 

Með bréfinu fylgdi afrit af fundargerð umrædds samráðsfundar, dags. 3. september 2013, og afrit af tölvupósti, dags. 19. sept 2013, um beiðni Isavia ohf. til Mýflugs um framlengingu á samningnum.

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál sendi kæranda bréf, dags. 19. mars 2014, og gaf honum kost á að koma að athugasemdum við framangreint bréf Isavia ohf, dags. 13. febrúar 2014. Hann svaraði með tölvubréfi, dags. 28. mars 2014, og kvaðst áfram óska eftir því að nefndin legði fyrir Isavia ohf. að afhenda „þau gögn sem óskað hefði verið eftir“. Hinn 19. maí 2014, barst jafnframt bréf frá honum þar sem fram kom að hann óskaði eftir „aðgangi að öllum bókunum hjá Isavia er varða samning og endurnýjun á samningi um útleigu á flugvél félagsins til Mýflugs hf.“

 Úrskurðarnefnd um upplýsingamál sendi Isavia ohf. bréf sama dag. Þar segir:

„Vísað er til fyrri bréfaskipta. Fyrir liggur að Isavia synjar því að Fréttablaðið fái afhentan upphaflegan samning (október 2009). Áður en málið er tekið til úrskurðar er nauðsynlegt að fram komi ótvírætt hvort afstaða Isavia sé einnig sú að Fréttablaðið fái ekki:a) Fundargerð samráðsfundar, dags. 3. september 2013, um endurnýjun samningsins.b) Tölvupóst, dags. 19. sept 2013, sem hefur að geyma beiðni Isavia til Mýflugs hf. um framlengingu á samningnum.“

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál barst svar Isavia ohf. sama dag. Þar segir:

„Isavia ohf gerir ekki athugasemdir við að Fréttablaðið fái aðgang að gögnum sem vísað er til í a- og b-lið í tölvupóstinum.“

Daginn eftir, þ.e. hinn 20. maí 2014, barst nefndinni síðan afrit að tölvuskeyti Isavia ohf. til kæranda þar sem félagið sendir honum umrædd gögn, þ.e. fundargerðina og tölvupóstinn
.
Með vísan til 31. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 þykir ekki ástæða til þess að rekja frekar það sem kemur fram í gögnum málsins um málsatvik og ágreiningsefni aðila en gert hefur verið. Þó má geta þess að í bréfi Isavia ohf., dags. 9. apríl 2014, segir að félagið muni ekki bera fyrir sig ákvæði 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin hefur haft hliðsjón af öllum gögnum málsins við úrlausn þess.

Niðurstaða

1.

Mál þetta varðar beiðni kæranda um aðgang að öllum bókunum hjá Isavia ohf. er varða samning og endurnýjun á samningi um útleigu á flugvél félagsins til Mýflugs hf. Upphaflegur samningur var gerður í október 2009 milli Flugstoða ohf. og Mýflugs hf. Rætt var um framlengingu hans á samráðsfundi, sem haldinn var 3. september, og í framhaldi af honum var, með tölvupósti til Mýflugs hf., dags. 19. september. 2013, óskað eftir framlengingu samningsins. 

Enginn ágreiningur er um aðgang að síðarnefndu gögnunum, þ.e. fundargerðinni og tölvupóstinum, og verður því ekki fjallað frekar um þau gögn í úrskurði þessum. Eftir stendur hins vegar að fjalla um aðgang að þeim samningi, sem gerður var í október árið 2009. 

2.

Með gildistöku upplýsingalaga nr. 140/2012, hinn 1. janúar 2013, var gildissvið upplýsingalaga víkkað. Áður tóku þau almennt aðeins til starfsemi stjórnvalda og ekki til einkaréttarlegra lögaðila, hvort sem þeir voru í eigu hins opinbera eða ekki. Ný upplýsingalög taka hins vegar einnig til allrar starfsemi sem fram fer á vegum einkaréttarlegra lögaðila sem eru í eigu hins opinbera að 51% hluta eða meira, sbr. 2. mgr. 2. gr. Það á m.a. við um Isavia ohf. og því taka ákvæði upplýsingalaga nr. 140/2012 til félagsins.

Upplýsingalög gilda um öll gögn sem undir þau falla, án tillits til þess hvenær þau urðu til eða hvenær þau hafa borist þeim aðilum sem undir þau falla, sbr. 2. mgr. 35. gr. Þó segir í 3. mgr. sömu greinar að þau gildi aðeins um þau gögn í vörslu lögaðila sem hafi orðið til eftir gildistöku laganna, sbr. 2. mgr. 2. gr. og 3. gr. Fyrir liggur að það gagn sem mál þetta lýtur að, þ.e. samingur Isavia ohf. við Mýflug hf. um leigu á flugvél í eigu fyrrnefnda félagsins, varð til fyrir gildistöku nýrra upplýsingalaga eða árið 2009. Fellur ágreiningur um aðgang að samningnum því utan valdssviðs úrskurðarnefndar um upplýsingamál, eins og það er afmarkað í 20. gr. laganna, og verður kærunni vísað frá nefndinni. 


Úrskurðarorð

Vísað er frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál kæru [A] dags. 3. febrúar 2014, á hendur Isavia ohf. yfir synjun aðgangs að samningi við Mýflug hf., þ.e. um leigu á flugvél í eigu Isavia ohf. 

Hafsteinn Þór Hauksson, formaður

Sigurveig Jónsdóttir          

Friðgeir Björnsson



 







Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum